Aðalráðstefna
Innsigluð með heilögum anda fyrirheitsins
Aðalráðstefna, október 2026


Innsigluð með heilögum anda fyrirheitsins

(Kenning og sáttmálar 132:7)

Það að taka á móti helgiathöfnum prestdæmisins og gera helga sáttmála, er nauðsynlegt skref í „ævilanga leiðangrinum“ til að samræma hjörtu okkar, huga og líf að vilja Guðs.

Fyrir mörgum árum lærði ég mikilvæga lexíu af Boyd K. Packer forseta. Hann sagði:

„Sama hvert ríkisfangið eða kynþátturinn er, hvort sem það er karl eða kona, sama hvaða starfsgrein, sama hver menntunin er, sama hvaða kynslóð maður er af, þá er lífið heimferð fyrir okkur öll, aftur í návist Guðs.

Helgiathafnir og sáttmálar verða persónuskilríki okkar til aðgöngu í návist hans. Að taka verðuglega á móti þeim er ævilangur leiðangur; að halda þá síðan er áskorun jarðlífsins.“

Ég bið þess að heilagur andi leiðbeini og upplýsi okkur öll þegar við íhugum mikilvægi helgiathafna og sáttmála sem andlegra skilríkja fyrir leið okkar heim til himnesks föður.

Dæmisagan um vegabréfið

Ég byrja á smásögu. Eitt sinn vildi maður heimsækja fjölskyldumeðlimi í fjarlægu landi. Hann skipulagði ferðina, pakkaði í töskuna og ferðaðist með flugvél til borgarinnar þar sem ættingjar hans bjuggu.

Maðurinn steig spenntur út úr flugvélinni og gekk að vegabréfaeftirlitsstöðinni. Hann var með gilt vegabréf, gefið út af viðurkenndri stofnun ríkisstjórnar lands síns. Hann framvísaði vegabréfi sínu fyrir landamæraverði sem staðfesti deili á manninum, þjóðerni og ástæðum þess að hann heimsótti landið. En maðurinn hafði ekki hugsað vel um vegabréf sitt. Persónuupplýsingasíðan hafði verið blettuð og skemmd. Og rifin síða hafði verið lagfærð á óheimilan hátt með límbandi og lími.

Landamæravörðurinn hafnaði því vegabréfi hans og neitaði að útvega nauðsynlegan stimpil til að komast inn í landið. Maðurinn var vonsvikinn og ráðvilltur varðandi sín næstu skref.

Lærdómurinn af þessari sögu er frekar einfaldur: vegabréfi verður að viðhalda í góðu ástandi. Með því að hafa gilt vegabréf gafst manninum kostur á að koma til landsins en vegabréfið eitt og sér tryggði ekki að hann fengi í raun inngöngu í landið.

Auðvitað hefur þessi einfalda samlíking takmarkanir. Andstætt skemmdum á áþreifanlegu vegabréfi, þá skerða mótlætið og þrengingarnar sem við upplifum án þess að bera neina sök á því sjálf ekki úr loforðum Guðs til okkar eða ógilda sáttmála okkar.

Sáttmálar, helgiathafnir og fyrirheitnar blessanir

Fyrir lærisveina Jesú Krists er það að taka á móti helgiathöfnum prestdæmisins og gera helga sáttmála, nauðsynlegt skref í „ævilanga leiðangrinum“ til að samræma hjörtu okkar, huga og líf að vilja Guðs.

Sáttmáli er hátíðlegt loforð – varanleg skuldbinding milli Guðs og sona hans og dætra. Guð setur ákvæði allra sáttmála fagnaðarerindisins og börn hans iðka siðferðislegt sjálfræði sitt til að læra og meðtaka það sem hann býður þeim að gera.

Sáttmála hljótum við með helgiathöfnum. Helgiathöfn er helg framkvæmd, gerð með valdi hins heilaga prestdæmis, sem hefur andlegan tilgang og eilífa þýðingu og tengist lögmálum og reglum Guðs. Helgiathafnir kenna okkur líka um eðli sáttmálanna sem við göngumst undir í lífi okkar.

Sáttmálar og helgiathafnir hins endurreista fagnaðarerindis frelsarans eru andleg skilríki sem geta opnað upp á gátt himneska glugga tækifæra til að hljóta guðlegan tilgang, leiðsögn og styrk í lífi okkar. Guð lofar sonum sínum og dætrum himneskum blessunum fyrir að heiðra sáttmála, þar á meðal hlýðni við lögmál og helgiathafnir fagnaðarerindis Jesú Krists. Áframhaldandi trúfesti er krafist til að þessi skilríki séu gild og til að fyrirheitnar blessanir geti hlotist.

Heilagur andi er heilagur andi fyrirheitsins

Heilagur andi er þriðji aðili Guðdómsins. Hann er andavera, ber vitni um allan sannleika og er vitni og sendiboði föðurins og sonarins.

Heilögum anda er einnig lýst í ritningunum sem heilögum anda fyrirheitsins sem samþykkir eða staðfestir réttlátar gjörðir barna sinna eins og Guði er þóknanlegt. Allar helgiathafnir og sáttmálar fagnaðarerindisins verða að lokum að vera innsigluð af heilögum anda fyrirheitsins. Eins og Drottinn opinberaði spámanninum Joseph Smith: „Allir sáttmálar … sem ekki eru gjörðir, stofnað [er] til og innsiglaðir [eru] af heilögum anda fyrirheitsins … hafa ekkert gildi, áhrif eða afl í upprisunni frá dauðum.“

Þegar helgiathöfn, heit eða sáttmáli eru innsigluð af heilögum anda fyrirheitsins, verður það bindandi á jörðu og á himni. Þessi innsiglun er skilyrt í jarðlífinu og hægt er að rjúfa hana eða fyrirgera henni með óréttlæti.

Að hljóta þessa staðfestandi innsiglun frá heilögum anda er venjulega ekki stakur atburður; hún gerist með tímanum er við iðrumst einlæglega og stöðugt, heiðrum sáttmála okkar og gefum Guði hjörtu okkar. Að leita þessarar blessunar af réttlæti er „áskorun jarðlífsins“, líkt og Packer forseti lýsti því.

Á sama hátt og maðurinn í vegabréfssögunni minni þurfti samþykktan stimpil í vegabréfið sitt til að komast til útlanda, þá þarf hvert og eitt okkar staðfestandi vitni heilags anda fyrirheitsins til að geta hlotið þær eilífu blessanir sem tengjast sáttmálum og helgiathöfnum fagnaðarerindis frelsarans.

Við ættum hvert og eitt að vera ævinlega þakklát fyrir helg tækifæri til að „fara í öllu eftir helgiathöfnum Drottins“ og meðtaka með heilögum anda fyrirheitsins hið staðfestandi innsigli sem tryggir allar fyrirheitnar blessanir „er tímar líða“.

Helgiathöfn innsiglunar

Innsiglun karls og konu í húsi Drottins er krýnandi sáttmáli og helgiathöfn hins endurreista fagnaðarerindis frelsarans. Og mikilvægt er að skilningur á kenningarlegu mikilvægi þess að helgiathöfn innsiglunar sé innsigluð með heilögum anda fyrirheitsins, hjálpar okkur að svara að hluta afar persónulegum spurningum um hvort val annarra geti komið í veg fyrir að trúfastur sáttmálshaldari fái notið eilífra blessana.

Helgiathöfn innsiglunar felur í sér tvo grundvallar- og skylda þætti: (1) eilífa sameiningu karls og konu í hjónabandi – sem skilja mætti sem lárétta innsiglun – og (2) innsiglun eiginmanns og eiginkonu inn í eilífa fjölskyldu Guðs og tengingu mannkyns gegnum allar kynslóðir – sem skilja mætti sem lóðrétta innsiglun. Báðir þættir helgiathafnarinnar eru nauðsynlegir.

Þær niðurstöður musterisinnsiglunar karls og konu sem ætlast er til og beðið er fyrir, fela í sér ævilangan andlegan vöxt, hollustu í hjónabandi, tryggð, samvinnu við að sigrast á óvissu og áskorunum jarðlífsins og varanlega hamingju.

Stundum, því miður, fæst tilætluð og umbeðin niðurstaða ekki. Syndir maka, ótryggð, persónulegt fráhvarf eða aðrir erfiðleikar geta valdið deilum, fælt í burtu og jafnvel endað með hjónaskilnaði. Í slíkum tilvikum gæti trúfastur maki spurt: „Getur óréttlát iðkun siðferðislegs sjálfræðis af hálfu einhvers annars rænt mig því sem Guð hefur lofað?“ Svarið við þessari spurningu er afdráttarlaust nei!

Óverðug breytni maka veldur vissulega hjartasorg og angist hjá hinum makanum og fjölskyldumeðlimum. Ranglæti af hálfu einnar manneskju getur þó ekki hindrað eða truflað það að flæði elsku, styrks og blessana Guðs nái til annars einstaklings. Kraftur hinnar óendanlegu og eilífu friðþægingar Drottins megnar að sigrast á öllu, alltaf, alls staðar, fyrir hvern þann einstakling sem heldur fast í sáttmála sína við hann.

Maki sem rýfur sáttmála og iðrast ekki, afsalar sér tækifærinu að meðtaka sjálfur staðfestandi innsiglun heilags anda fyrirheitsins, bæði fyrir láréttan og lóðréttan þátt innsiglunarhelgiathafnarinnar.

Trúfastur maki sem heiðrar sáttmála og sækir fram í trú, er áfram verðugur þess að meðtaka sjálfur staðfestandi innsiglun heilags anda fyrirheitsins fyrir lóðréttan þátt innsiglunarhelgiathafnarinnar og að meðtaka allar aðrar persónulegar blessanir sem henni fylgja.

Þið gætuð spurt: „Hvernig getur þetta gerst ef musterishjónaband varir ekki?“

Hin opinberaða kenning Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu tekur ekki á öllum smáatriðum og blæbrigðum slíkra mála. Ég veit ekki og get ekki útskýrt nákvæmlega hvernig og hvenær fyrirheitnar blessanir berast. Ég veit þó að fyrirheitnar blessanir munu veitast. Enginn trúfastur lærisveinn mun að lokum sviptur neinni eilífri blessun sem Guð hefur lofað vegna óréttlátrar iðkunar siðferðislegs sjálfræðis annars einstaklings.

Ég lýk máli mínu með hughreystandi vitnisburði Benjamíns konungs: „Og enn fremur langar mig til, að þér hugleiðið blessun og hamingju þeirra, sem halda boðorð Guðs. Því að sjá. Þeir njóta blessunar í öllu, jafnt stundlegu sem andlegu. Og ef þeir haldast staðfastir allt til enda, er tekið á móti þeim á himni, og þeir fá dvalið með Guði í óendanlegri sælu. Ó, munið og hafið hugfast, að þetta er sannleikur, því að Drottinn Guð hefur talað það.“

Ég ber gleðiríkt vitni um sannleiksgildi spámannlegs loforðs Benjamíns konungs, í hinu helga nafni Drottins Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Boyd K. Packer, „Covenants,“ Ensign, maí 1987; skáletrað hér.

  2. Sjá Boyd K. Packer, „Covenants,“ 23.

  3. Sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Helgiathafnir,“ Gospel Library.

  4. Sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Sáttmáli,“ Gospel Library.

  5. Sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Heilagur andi fyrirheitsins,“ Gospel Library.

  6. Kenning og sáttmálar 132:7.

  7. Sjá HDP Móse 7:21.

  8. Boyd K. Packer, „Covenants,“ 24; skáletrað hér.

  9. Kenning og sáttmálar 136:4.

  10. HDP Móse 7:21.

  11. Russell M. Nelson forseti kenndi: „Eiginmaður og eiginkona gera sáttmála við Guð og hvort annað, um að vera hvort öðru trygg og trú. … Rétt eins og hjónabönd og fjölskyldur búa að sérstöku sameiginlegu sambandi, sem knýr fram sérstakan kærleika, svo og gerir hið nýja samband sem verður til þegar við bindum okkur Guði persónulega með sáttmála!“ („Hinn ævarandi sáttmáli,“ aðalráðstefna, okt. 2022).

  12. Þessar blessanir koma fram í sáttmálanum sem við hljótum með innsiglunarathöfninni. „Meðan innsiglun varir, mun meðlimur sem trúfastur er musterissáttmálanum hljóta þær persónulegu blessanir sem lofaðar eru í musterinu. Þetta á við jafnvel þó að maki einstaklingsins hafi brotið sáttmálana eða dregið sig út úr hjónabandinu. Enn fremur mun Guð ekki krefjast þess að neinn sé í innsigluðu sambandi um alla eilífð þvert gegn eigin vilja. Himneskur faðir mun tryggja að hver einstaklingur hljóti allar þær blessanir sem þrár hans og val leyfa“ (Almenn handbók: Þjónusta í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 38.4.1.10, Gospel Library).

  13. Drottinn Jesús Kristur hefur sagt: „Orð mín eru örugg og bregðast ei. … En allt verður að gerast á sínum tíma“ (Kenning og sáttmálar 64:31–32).

  14. Mósía 2:41.