Hugrekki sem fæðist af trú okkar á Jesú Krist
Þegar við sýnum hugrekki í að velja rétt, mun trú okkar á Krist styrkjast.
Við bjóðum Rosemary Chibota forseta velkomna til starfa í hóp aðalleiðtoga kirkjunnar. Saga hennar er dæmi um hugrekki sem sprettur af trú á Jesú Krist.
Hin sautján ára Rosemary fann bækling um Joseph Smith sem trúboðar höfðu skilið eftir á heimili hennar í Simbabve. Hún las hann og hlaut samstundis andlegan vitnisburð um að bókin væri sönn. Joseph hafði séð Guð föðurinn og son hans, Jesú Krist. Hún hlaut kennslu, skírn og varð fordæmi fyrir foreldra sína, sem gengu í kirkjuna 19 árum síðar.
Trú og hugdirfska eru aðalsmerki lærisveina Jesú Krists.
Jesús Kristur er himneskur sonur Guðs. Frelsari heimsins kom til jarðar við fábrotnar aðstæður. Hann lifði fullkomnu lífi. Hann kenndi okkur hvernig að lifa jarðnesku lífi okkar og hvernig á að búa okkur undir eilíft líf. Vegna óviðjafnanlegrar elsku sinnar til sérhvers okkar, gaf hann gjöf sem aðeins hann gat gefið, með því að þjást fyrir syndir okkar, gera okkur kleift að iðrast og hljóta fyrirgefningu. Hann var festur á krossinn og reis upp á þriðja degi í tignarleika áætlunar himnesks föður. Við munum líka rísa upp, vegna þess að hann reis úr gröfinni. Hversu göfugur er tilgangur Guðs og hversu mikil lotning okkar fyrir frelsara okkar.
Andlegt hugrekki
Að vera sannur lærisveinn hans, sigrast á heiminum, halda boðorð hans og treysta á hann og loforð hans, eru ekki tilviljunarkennd viðfangsefni. Andlegt hugrekki er sigur yfir hindrunum, efa og ótta við að velja rétt.
Það hefur ávallt þurft andlegt hugrekki, sem fæddist í trú á Jesú Krist, til að vera lærisveinn hans. „Ég er einn,“ ritaði Moróní. „Faðir minn [og öll fjölskylda mín] hefur fallið í bardaga, … og ég á hvorki vini né stað til að fara á.“
Á sama tíma og andstæðingar hans tóku af lífi alla þá, sem ekki vildu afneita Kristi, sagði hann af hugrekki: „Og ég, Moróní, mun ekki afneita Kristi.“
Heimur okkar er annar en á tíma Morónís, en lærisveinshlutverkið krefst ætíð hugrekkis. Efasemdum, truflunum og blekkingum okkar tíma má lýsa með orðum Páls postula: „Baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs.“
Heimur okkar er í stöðugri upplausn. Síminn okkar virðist næstum festur við hönd okkar, með flóði upplýsinga, villandi upplýsingum og nú gerviupplýsingum.
Ég ólst upp á litlu kúabúi. Á tímabili voru á annan tug kúa hýst nærri litlu gili. Næstum á hverjum sumarmorgni, eftir mjaltir, söðlaði ég hestinn minn og leiddi kýrnar út á mikið engi til beitar, án farsíma, heyrnartóla, tónlistar, textaskilaboða. Allan daginn, bara ég og kýrnar, einn með hugsunum mínum. Tímarnir hafa breyst en andi okkar hefur ekki breyst. Við þurfum kyrrð til að næra trú okkar á Krist.
Trú og hugrekki
Þegar við veljum trú á Krist, þá blessar hann okkur með hugrekki til að velja hið rétta, stundum við mjög erfiðar aðstæður og þegar við sýnum hugrekki okkar til að velja rétt, mun trú okkar á Krist styrkjast.
Við fögnum í trúnni á Jesú Krist og yfir því andlega hugrekki sem við sjáum í ykkur, kirkjumeðlimum okkar um allan heim.
Það er trú okkar á Jesú Krist sem veitir okkur þrá til að krjúpa auðmjúk og biðja til himnesks föður. Á þessum hljóðu stundum, þegar sem við tölum einslega og sjálfstætt við himneskan föður, er okkur veitt aukið hugrekki til að velja rétt. Þegar ég var ungur heyrði ég David O. McKay forseta segja: „Mikilvægasta orrusta lífsins er háð í hljóðri vitund eigin sálar.“ Þegar við sigrum hugrökk í orrustum sálarinnar, margfaldast trú okkar á frelsara okkar.
Í hverri viku meðtökum við brauð og vatn sakramentisins í bænaranda og vitnum fyrir Guði og í návist annarra að við séum „fús til að taka á [okkur] nafn [Jesú Krists] og hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans.“ Við erum síðan trúföst sáttmálum okkar með hugrekki og í staðinn mun Drottinn blessa okkur með aukinni trú.
Það er trú okkar á Jesú Krist sem veitir okkur hugrekki til að taka á móti köllun prestdæmisleiðtoga okkar, jafnvel þegar okkur finnst við vera ófullnægjandi eða höfum ekki nægan tíma til að taka á okkur þá ábyrgð.
Sem ungur lögfræðingur, starfaði Dallin H. Oaks forseti ötullega á virtri lögfræðistofu, meðal annars á kvöldin og laugardögum. Stikuforseti hans kallaði hann sem ráðgjafa í stikutrúboðsforsætisráðinu, sem krafðist hið minnsta þriggja til fjögurra kvölda í viku. Oaks forseti hugsaði málið: „Ég tók á móti kölluninni með því að beita allri minni trú.“ Oaks forseti lýsti þessu sem mjög mikilvægri ákvörðun í lífi sínu. Trú hans styrkti hugrekki hans og ákvörðun hans leiddi til aukinnar trúar.
Það er trú okkar á Jesú Krist sem færir okkur andlegt hugrekki til að þjóna öðrum, lifa eftir Vísdómsorðinu, halda skírlífislögmálið, heiðra hvíldardaginn, vera heiðarleg í tíund okkar og treysta á föður okkar og son hans þegar ófyrirsjáanleg veikindi, fjárhagserfiðleikar eða náttúruhamfarir setja líf okkar í uppnám.
Fyrir mánuði síðan fylgdi ég Dieter F. Uchtdorf forseta til Spokane, Washington, þar sem eldar eyðilögðu meira en 800 heimili. Við heimsóttum meðlimi þar sem hverfi þeirra voru algjörlega eyðilögð. „Fjölskyldan okkar er örugg,“ sögðu Cody og Haylee Woodbury við mig, „og trú okkar er trygg. Við getum byggt annað hús.“ Trú þeirra á Jesú Krist vakti þeim kjark og hugrekki þeirra hefur eflt trú þeirra.
Það er trú tugþúsunda markverðra, ungra karla og kvenna um allan heim sem veitir þeim hugrekki til að fara á fætur fyrir sólarupprás, fara í trúarskólann, síðan að þjóna í trúboði og giftast og stofna fjölskyldu, þegar þau koma aftur. Hugrekki þeirra sem ekki geta gifst, hjálpar þeim að vera trú sáttmálum sínum.
Með trú á Krist og ótrúlegu hugrekki, býr ung móðir litlu börnin sín undir kirkju, meðvituð um að sumir sunnudagar munu frekar snúast um lífsins baráttu en andlega endurnýjun.
Það er trú okkar á Krist sem veitir okkur það andlega hugrekki að tala opinskátt um frelsara okkar, gera sáttmála í húsi Drottins, iðrast og hljóta fyrirgefningu, fylgja lifandi spámönnum og fá leiðsögn um að fylgja hljóðum hughrifum heilags anda.
Nýlega miðlaði göfug, trúrækin kona vitnisburði sínum í kirkju. Í trúnaði vissi ég að hún hafði verið niðurbrotin yfir svikum eiginmanns síns. Af hugrekki sem spratt af trú hennar, lýsti hún kröftuglega yfir að í hamingju eða ólýsanlegri sorg, myndi hún treysta á bjarg hjálpræðis síns, frelsara sinn, Jesú Krist.
Ef von okkar er lifandi í Kristi, jafnvel í hinum mörgu áskorunum lífsins, gætum við líka sagt, eins og Páll postuli sagði: „Aðþrengd á allar hliðar, en þó eigi ofþrengd. … ráðalaus, en ekki í örvæntingu.“
Fyrirheit og vitnisburður
Ég lofa ykkur, að er þið eflið trú ykkar á Jesú Krist með því að trúa á hann og fylgja honum og halda boðorð hans, munu svör ykkar berast, andlegur kraftur ykkar aukast og hugrekki ykkar til að fylgja Kristi mun skilgreina eilífa sál ykkar.
Sannlega: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum.“
Pétur og Jóhannes voru í herberginu þegar hinn upprisni Kristur birtist postulunum. „Lítið á hendur mínar og fætur,“ sagði Jesús, „að það er ég sjálfur. Þreifið á mér og gætið að.“
Stuttu eftir þessa helgu reynslu, tókust vantrúaðir höfðingjar á við Pétur og Jóhannes varðandi lækningu á manni sem ekki gat gengið. „[Fylltir] heilögum anda,“ sögðu Pétur og Jóhannes af hugrekki sem byggðist á trú þeirra: „Með því að við eigum í dag að svara til saka … og gera grein fyrir því hvernig [þessi maður] sé orðinn heill, þá sé ykkur öllum kunnugt … að í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess er þér krossfestuð en Guð uppvakti frá dauðum, í hans nafni stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum ykkar.“
Líkt og Pétur og Jóhannes til forna, þá ber ég líka vitni um raunveruleika „Jesú Krists frá Nasaret.“ Hann lifir. Hann leiðir sitt heilaga verk, hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. Í nafni Jesú Krists, amen.