2022
Óttast ekki, trú þú aðeins!
Maí 2021


„Óttast ekki, trú þú aðeins!,“ Til styrktar ungmennum, maí 2022.

Laugardagssíðdegi

Óttast ekki, trú þú aðeins!

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald af stjörnubjörtum himni

Hala niður PDF skjali

Skiljanlegt er að hugsjón ungmenna dvíni örlítið eins og okkar tímar eru. …

Bón mín í dag til ungmenna okkar og ykkar foreldra og fullorðinna sem leiðbeinið þeim, er að þið hefjið leit ykkar að hamingju með því að taka á móti þeirri gnægð sem við höfum þegar hlotið frá gjafara allra góðra gjafa. Einmitt á tíma er svo margir í heiminum spyrja djúpstæðra spurninga um sálina, ættum við að svara með „hinum góðu tíðindum“ fagnaðarerindis Jesú Krists. Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem heldur á lofti hlutverki og boðskap frelsara heimsins, býður mikilvægustu leiðina bæði til að finna gott og gera gott á slíkum tímum neyðar. …

Til allra ungmenna okkar þarna úti, sem eiga í baráttu, hverjar sem áhyggjur ykkar eða erfiðleikar eru, þá er dauði af völdum sjálfsvígs augljóslega ekki svarið. Það mun ekki lina sársaukann sem þið finnið eða sem þið haldið að þið valdið. Þar sem heimurinn þarfnast svo sárlega alls þess ljóss sem mögulegt er, lágmarkið þá ekki hið eilífa ljós sem Guð gæddi sál ykkar áður en þessi heimur varð til. Talið við einhvern. Biðjið um hjálp. Eyðileggið ekki líf sem Kristur gaf líf sitt til að varðveita. Þið getið tekist á við baráttu þessa jarðneska lífs, því við munum hjálpa ykkur við það. Þið eruð sterkari en þið gerið ykkur grein fyrir. Hjálp er tiltæk frá öðrum og einkum frá Guði. Þið eruð elskuð, metin og þörf er fyrir ykkur. Við þörfnumst ykkar! „Óttast ekki, trú þú aðeins.“ …

… Við höfum svo mikið að gleðjast yfir. Við höfum hvert annað og við höfum hann. Neitið okkur ekki um það tækifæri að hafa ykkur.