2021
Hreinn sannleikur, hrein kenning og hrein opinberun
Nóvember 2021


„Hreinn sannleikur, hrein kenning og hrein opinberun,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2021.

Laugardagsmorgunn

Hreinn sannleikur, hrein kenning og hrein opinberun

Útdráttur

Kæru bræður og systur, velkomin á aðalráðstefnu! …

Ég [býð] ykkur að hlusta eftir þremur atriðum á þessari ráðstefnu: hreinum sannleika, hreinni kenningu Krists og hreinni opinberun. Andstætt efasemdum einhverra, þá er rétt og rangt raunverulega til. Alger sannleikur – eilífur sannleikur – er raunverulegur. Einn skaðvaldur okkar tíma, er að of fáir vita hvert á að snúa sér til að finna sannleika. Ég get fullvissað ykkur um að það sem þið heyrið í dag og á morgun er hreinn sannleikur.

Hin hreina kenning Krists er máttug. Hún breytir lífi allra þeirra sem skilja hana og reyna að lifa eftir henni. Kenning Krists hjálpar okkur að finna og dvelja á sáttmálsveginum. Að dvelja á hinum þrönga en vel skilgreinda vegi, mun að lokum gera okkur hæf til að meðtaka allt sem Guðs er. Ekkert er dýrmætara en allt það sem föðurins er!

Að lokum, mun hrein opinberun um ykkar hjartfólgnu spurningar gera þessa ráðstefnu gefandi og ógleymanlega. Ef þið hafið ekki enn leitað liðsinnis heilags anda til að hjálpa ykkur við að hlýða á það sem Drottinn vill að þið heyrið þessa tvo daga, þá býð ég ykkur að gera það núna. Gerið þessa ráðstefnu að tíma þar sem þið endurnærist af boðskap Drottins fyrir tilstilli þjóna hans. Lærið hvernig á að tileinka sér hann í eigin lífi.