Allir eru velkomnir. Heimasækið kirkju nærri ykkur.

Við erum kristilega sinnað samfélag, sem gerir sitt besta til að elska og þjóna öðrum. Það er staður fyrir alla hér.
Finnið kirkju nærri ykkur.
People in Lima, Peru: Attending Church

Algengar spurningar

Eru meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kristnir?

Já! Sem meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, trúum við að Jesús Kristur sé sonur Guðs og frelsari heimsins. Hann elskar okkur meira en við fáum ímyndað okkur. Við teljum okkur vera trúfasta fylgjendur Jesú. Þótt trú okkar sé að mörgu leiti sérstæð, þá trúum við að Jesús Kristur frelsi okkur frá synd, þjáningu og dauða með lífi sínu, þjónustu, fórn og upprisu.

Lærið meira um trúarskoðanir okkar.

Hvernig fara kirkjusamkomur fram?

Samkomutími kirkjunnar er mismunandi eftir söfnuðum. Það er þó alltaf hægt að treysta á eina aðalsamkomu fyrir alla og síðan námsbekki fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Samkoman fyrir alla er kölluð „sakramentissamkoma.“ Sú samkoma samanstendur af söngvum, bænum og prédikunum (eða „ræðum“) sem mismunandi meðlimir safnaðarins flytja í hverri viku. En mikilvægasti hluti samkomunnar er þegar við meðtökum sakramentið (sem svipar til altarisgöngu) til að minnast frelsarans.

Lærið meira um sunnudagssamkomur eða finnið næstu kirkju.

Hvers vegna er Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu með musteri?

Fyrir Síðari daga heilaga eru musteri frábrugðin öðrum kirkjubyggingum. Musterið er staður þar sem Síðari daga heilagir hljóta sérstaka kennslu um Guð og Jesú Krist. Í musterinu gera meðlimir eilífa sáttmála (eða loforð) við Guð. Það felur í sér loforð um að halda boðorðin, lifa eftir fagnaðarerindi Jesú Krists, vera trúföst í hjónabandinu og annast hvert annað með því að miðla því sem við höfum.

Þar sem við trúum að fjölskyldur séu eilífar, þá snýst stór hluti starfsins sem unnið er í musterunum um að styrkja fjölskylduböndin enn frekar. Hjónavígslur í musterinu eru framkvæmdar til að vara að eilífu, ekki bara „þar til dauðinn aðskilur.“ Foreldrar og börn verða eilífar fjölskyldur í musterum. Áar geta einnig hlotið allar blessanir musterisins ef einhver framkvæmir helgiathafnirnar í þeirra þágu og þeir taka á móti þeirri þjónustu. Í musterum er mikið um að vera!

Hvað er Mormónsbók?

Mormónsbók er innblásin ritning sem kennir okkur um Guð og Jesú Krist. Hún hjálpar okkur að hljóta leiðsögn fyrir persónulegt líf okkar og getur hjálpað okkur að finnast við vera nærri Jesú Kristi. Hvaðan kemur nafnið? Fyrir hundruð ára tók spámaður til forna, að nafni Mormón, saman heimild um þjóð sína. Fólkið tókst á við fjölda sömu áskorana og við gerum. Og, rétt eins og við, fann það styrk þegar það sneri sér til Jesú Krists. Fáið kynningu á Mormónsbók með trúboðum.

Mormónsbók stendur samhliða Biblíunni, sem annað vitni um Jesú Krist og guðlegt hlutverk hans sem frelsara og lausnara heimsins. Saman veita Biblían og Mormónsbók aukinn skilning á miklum kærleika Guðs til okkar allra og geta hjálpað okkur að komast nær honum. 

Lærið meira um það hvernig Biblían og Mormónsbók vinna saman.

Trúum við á Biblíuna?

Já. Biblían er orð Guðs, heilög ritning og það færir okkur gleði að fylgja kenningum hennar. Við finnum líka innblástur í öðrum bókum, ásamt Biblíunni, sem eru einstæðar fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Þær vinna allar saman að því að kenna okkur mikilvægan sannleika um Guð og Jesú Krist.

Lærið meira um trú okkar á Biblíuna.

Skoðið fleira

Nálgist Guð. Hittið trúboða.

Hittið trúboðana á netinu eða í eigin persónu. Við munum svara spurningum ykkar og kynna ykkur kirkjusamfélagið á heimasvæðinu.

Biðjið um heimsókn
Two sister missionaries prepare to ride the subway in Hong Kong

Samfélag trúar sem hefur Jesú Krist að þungamiðju

Four Corners: Primary Children
Hvers má vænta í kirkju
Kirkjan er skjól frá ringulreið daglegs lífs – staður þar sem þið getið tilbeðið Guð með öðrum trúuðum sem reyna að líkjast Jesú meira. Við viljum gjarnan fá ykkur í heimsókn!
Pacific, New Zealand, Stock Photos
Trúarskoðanir okkar
Öll trú okkar hefur Jesú Krist að þungamiðju. Lærið meira um hverju við trúum og hvernig þessi grunntrú getur hvatt ykkur til að fylgja frelsaranum.
Kynnist okkur
Pacific, Tonga, Stock Photos
Kynnist okkur
Þið finnið meðlimi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu víða um heim. Við erum vinir ykkar og nágrannar, vinnum saman að því að reyna að gera heiminn að betri stað.

Fáið nýjustu fréttir frá kirkjunni.

Góðir hlutir eru að gerast um allan heim. Fáið nýjustu fréttir af verkefnum kirkjunnar, viðburðum, líknarstarfi á hörmungarsvæðum og fleiru.

Skoðið fréttaveituna
Chile: Family Life
Finnið kirkju
nærri ykkur
Hittið trúboða
Lærið Mormónsbók.