Musterisloforð binda okkur Guði og hvert öðru
Vegna fórnar Jesú Krists, getum við lifað aftur með ástvinum okkar og Guði eftir þetta líf. Við getum valið að fylgja honum með því að gera sáttmála, eða loforð, við hann.
Hvað er musteri?
Musteri eru heilagir og helgir staðir. Við lítum svo á að musterin séu hús Drottins Jesú Krists. Þau eru öðruvísi en kirkjubyggingar þar sem við höfum tilbeiðslusamkomur á sunnudögum og aðra viðburði. Musteri eru helguð fyrir helgasta verk Guðs.
Musteri eru full af symbólisma. Þeir sem fara í musterið klæðast til dæmis einföldum, hvítum fatnaði sem táknar hreinleika og jafnrétti frammi fyrir Guði. Musteri eru heilagt, friðsælt athvarf þar sem fylgjendur Jesú Krists geta tengst honum á dýpri hátt.
Mikilvægast er að musteri eru staðir þar sem við getum gert helga sáttmála við Guð.

Þegar við erum skírð, lofum við Guði að við munum þjóna honum, halda boðorð hans og taka á okkur nafn Jesú Krists. Ef við gerum þetta, lofar Guð að fyrirgefa syndir okkar, blessa okkur með sínum heilaga anda og gefa okkur eilíft líf í návist hans.
Við endurnýjum sáttmálana sem við gerum við skírnina þegar við meðtökum sakramentið, einnig kallað altarisganga, hvern sunnudag í kirkju. Þetta sakramenti er eftir forskrift sakramentis síðustu kvöldmáltíðarinnar, sem Jesús kynnti postulum sínum fyrir dauða sinn.
Eftir skírn geta fullorðnir meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu gert fleiri sáttmála við Guð í musterinu. Þessir sáttmálar og loforð styrkja samband þeirra við hann og færa enn stærri blessanir.

Við gerum sáttmála í musterinu
Musterisgjöf
Orðið musterisgjöf felur í sér „gjöf“. Í musterisgjöfinni gera fullorðnir kirkjumeðlimir hátíðlega sáttmála, þar á meðal loforð um að hlýða boðorðum Guðs og helga verki Drottins tíma sinn og hæfileika. Í staðinn hljóta meðlimir blessanir eins og meiri þekkingu á áætlun Guðs, aukinn styrk til að fylgja fordæmi Krists og tækifæri til að lifa með Guði að eilífu.Innsiglun
Ein mesta gleði fagnaðarerindis Jesú Krists er loforðið um að fjölskylduböndin geti varað út fyrir okkar dauðlega líf. Í musterinu eru fjölskyldur tengdar eða „innsiglaðar“ saman um eilífð.Í innsiglunarathöfn hjónabands krjúpa eiginmaður og eiginkona við altari til að gera sáttmála við hvert annað og Guð. Þau heita því að þau muni heiðra og elska hvort annað algjörlega og skuldbinda sig til að fylgja kenningum og fordæmi Jesú Krists. Á móti er þeim lofað að hjónaband þeirra og fjölskylda muni vara að eilífu.
Starfa í þágu látinna áa
Við trúum á réttlátan og miskunnsaman Guð sem neitar ekki neinu barna sinna um blessanir eilífðarinnar, sökum óviðráðanlegra aðstæðna.Í musterinu framkvæmum við skírn, musterisgjöf og innsiglun fyrir hönd þeirra áa sem ekki höfðu tækifæri til að meðtaka þessar helgiathafnir áður en þeir dóu. Í þessu verki kemur einhver sem er á lífi í staðinn fyrir einhvern sem látinn er, sem staðgengill.
Þessar helgu athafnir fara aðeins fram í musterum. Við trúum því að áar okkar geti valið að taka á móti eða hafna þessari fórn, sem þeim er gefin í kærleika.
Algengar spurningar
Hvernig er musteri frábrugðið venjulegri kirkjubyggingu?
Hvernig er musteri frábrugðið venjulegri kirkjubyggingu?
- Kirkjur eru notaðar fyrir tilbeiðslusamkomur á sunnudögum, viðburði ungmenna, félagssamkomur og aðra samfélagsviðburði á virkum dögum, en musterin eru vígð fyrir sérstaka helga þjónustu og helgiathafnir.
- Þið getið komið auga á musteri með orðunum „Hús Drottins“ á byggingunni, en venjuleg kapella er áletruð með orðunum „gestir velkomnir“ og „Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu“.
- Samskipti hópa og samfélagsuppbygging eru stór hluti af því sem gerist í kapellum, en musterin njóta sérstakrar lotningar. Í musterum er fólk hljóðlátt og íhugult til að viðhalda virðingu fyrir Drottni.
Get ég farið inn í musteri?
Get ég farið inn í musteri?
Stundum er hægt að fara inn í musterið! Þegar musteri eru fyrst byggð eða eftir að gerðar hafa verið á þeim umfangsmiklar endurbætur eru opin hús höfð fyrir almenning. Í mörgum musterum eru líka gestamiðstöðvar, biðsvæði eða lóðir sem eru opin hverjum sem er.
Eftir að byggingu musteris lýkur er það tileinkað helgri tilbeiðslu. Vegna heilags eðlis þess verks sem unnið er í musterum, eru þau einungis opin þeim meðlimum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem hafa búið sig undir þá upplifun.
Þótt þið getið ekki farið í musteri einmitt núna, þá er öllum börnum Guðs boðið að læra meira um fagnaðarerindi Jesú Krists og ganga í það sáttmálssamband sem gerir ykkur mögulegt að taka að fullu þátt í blessunum musterisins.

Hvernig eru musterisgiftingar?
Hvernig eru musterisgiftingar?
Í stuttri, einfaldri athöfn taka brúðhjónin höndum saman yfir altari. Þau gera sáttmála við Guð um að þau muni heiðra og elska hvort annað algjörlega og skuldbinda sig til að fylgja kenningum og fordæmi frelsarans. Á móti er þeim lofað að hjónaband þeirra og fjölskylda muni vara að eilífu.
Hjón sem giftast í musterinu fagna oft með fjölskyldu og vinum eftir á, með brúðkaupsveislu eða annarri menningarhefð. Hjón sem giftu sig fyrst í borgaralegri vígslu utan musterisins (t.d. þau sem gengu í kirkjuna eftir að hafa þegar gift sig) geta einnig upplifað blessanir þess að innsiglast í musterinu.

Fjölskylda ykkar getur átt eilífð saman
Trúboðar geta kennt ykkur meira um hvernig blessanir skírnar- og musterissáttmála – þar á meðal loforðsins um eilífa fjölskyldu – geta verið hluti af lífi ykkar.