Series of images of family spending time together and female child playing the guitar/ukelele

Hver við erum

Meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu samanstanda af fjölbreyttu samfélagi fólks víða um heim, sem hefur sömu trú á Guð og son hans, Jesú Krist.

Virk trú

Vinir og nágrannar
Þið finnið okkur þar sem við búum, störfum og byggjum upp fjölskyldur okkar um allan heim. Fyrir okkur er þátttaka í samfélaginu ein leið til að elska náunga okkar, eins og Jesús kenndi.
Virkir söfnuðir
Í stað þess að vera með launaða presta í fullu starfi, sinnum við öll því verki í heimasöfnuðum okkar, með því að taka að okkur leiðtogahlutverk, ræðuflutning og önnur sjálfboðaliðastörf.
Stuðningur utan sunnudags
Fyrir okkur er kirkjan meira en tilbeiðsla á sunnudögum – hún er líka staður til að finna stuðning í gegnum vináttu og upplifanir sem styrkja trú og bjóða hagnýta hjálp við áskoranir lífsins.

We Work Together as Followers of Jesus Christ

Improving lives and building strong communities

Við tilbiðjum saman
Í yfir 30.000 söfnuðum víða um heim, tengist fólk öðrum í samfélagi sínu til að tilbiðja, biðjast fyrir, syngja sálma og læra um fagnaðarerindi Jesú Krists.
Við lærum saman
Í vikunni kemur fólk á öllum aldri saman í námsbekkjum, svo sem í trúarskóla fyrir ungmenni eða trúarskóla fyrir yngra fullorðið fólk, til að læra saman um kenningar Jesú.
Við þjónum öðrum
Þjónustuverkefni eru reglulegur þáttur í starfsemi kirkjunnar og lykilþáttur í því að lifa eftir boðorðum Guðs um að elska náunga okkar.
Við byggjum upp sambönd
Söfnuðir okkar eru hluti af þeim íbúðahverfum sem við búum í og við leggjum hart að okkur til að vera góðir nágrannar og vinir. Félagsstarf er skemmtilegur og mikilvægur þáttur í að byggja upp kirkjusamfélag.
Við styrkjum fjölskyldur
Sterk fjölskyldubönd gera þetta líf gleðiríkt og hjálpa okkur að byggja upp þann heim sem við viljum. Reynsla okkar og þjónusta í kirkjunni styður við dýpri og kærleiksríkari fjölskyldusambönd.
Við verðum betri
Að verða sú manneskja sem við vonumst til að verða, er mikilvægur hluti af lífi okkar í kirkjunni. Kirkjustarfsemin hjálpar fólki að læra og vaxa bæði andlega og á hagnýtan hátt fyrir tilstilli fagnaðarerindis Jesú Krists.

Find Our Church Near You

Want to see how a supportive church community can benefit you? Come and see for yourself by visiting a local congregation of The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints.
Find Our Church Near You

Church Leadership

“As every man hath received the gift, even so minister the same one to another as good stewards of the manifold grace of God.” –1 Peter 4:10.

Við trúum á spámenn og postula
Á sama hátt og Jesú Kristur stofnsetti og leiddi fólkið sitt á tíma Biblíunnar, nýtur kirkjan leiðsagnar spámanns og postula á okkar tíma. Þessir leiðtogar þjóna og starfa undir innblásinni handleiðslu hans. Þið getið lært meira um þá hér.
Leiðtogar koma víða að úr heiminum
Karlar og konur úr öllum stéttum samfélagsins hjálpa til við að leiða starf kirkjunnar svæðisbundið og um allan heim. Eitt dæmi um það eru konurnar sem leiða Líknarfélagið.
Staðarleiðtogar eru venjulegt fólk
Í stað prestastéttar í fullu starfi, eru heimasöfnuðir leiddir af meðlimum kirkjunnar sem bjóða fram tíma sinn. Þeir njóta stuðnings annarra almennra kirkjumeðlima, sem aðstoða við allt frá kennslu námsbekkja sunnudagaskólans til þrifa á kirkjubyggingunni.
Við kennum hverju öðru
Þegar þið heimsækið söfnuði okkar munið þið taka eftir að við kennum hverju öðru og lærum saman í ritningunum. Við trúum að allir hafi eitthvað verðmætt að leggja fram og því biðja leiðtogar fjölbreyttan hóp fólks að prédika úr ræðupúlti, biðjast fyrir og kenna í námsbekkjum.

Fáið persónulega kynningu

Ef þið hafið áhuga á að heimsækja söfnuð á ykkar svæði, viljum við að ykkur líði eins vel og mögulegt er. Staðartrúboðar geta heimsótt ykkur áður til að láta ykkur vita við hverju þið megið búast, svarað spurningum ykkar og jafnvel tekið frá sæti fyrir ykkur þegar þið eruð tilbúin til að heimsækja.
Talið við trúboða um kirkjuna
Gerið pósthólfið ykkar andríkara
Fáið upplífgandi myndbönd, greinar og fleira með vikulegum netpósti.