Hvers má vænta í kirkju

Kirkjan okkar er staður þar sem þið getið komið saman með öðru trúuðu fólki til að ígrunda, tilbiðja, læra og verða betri manneskja.

Gestir eru ávallt velkomnir

Það stendur „Gestir velkomnir“ á öllum okkar byggingum – og við meinum það! Hvort sem þið viljið gerast meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, heimsækja vin eða viljið aðeins forvitnast, þá erum við ánægð að sjá ykkur.

Hvers má vænta á sunnudagssamkomum

Kirkjan er staður samfélags og lærdóms, en mikilvægast er þó að hún er staður til að tilbiðja Guð og Jesú Krist. Sérhver af okkar 30.000 söfnuðum um heim allan hafa svipað tveggja klukkustunda fyrirkomulag fyrir sunnudagssamkomur:
A church congregation singing hymns

Sakramentissamkoma

Á því sem við köllum „sakramentissamkomu“ koma allir safnaðarmeðlimir saman. Á samkomunni eru inngangs- og lokabænir, nokkrir sálmar og prédikanir fluttar af öðrum kirkjumeðlimum.

Mikilvægasti hluti sakramentissamkomunnar er að meðtaka sakramentið, sem er svipað og altarisganga í öðrum kristnum trúarbrögðum. Meðan á sakramentinu stendur, minnumst við Jesú Krists er við tökum lítinn brauðbita og bolla af vatni, sem eru táknræn fyrir líkamann og blóðið sem hann fórnaði fyrir okkur. Á þessum hljóðlátari tíma reynum við að hugsa um leiðir til að fylgja honum af meiri trúfesti í komandi viku.

Ekki er ætlast til þess að þið takið þátt í neinu sem ykkur sem gestum líður illa með. Ykkur er velkomið að einfaldlega sitja meðal safnaðarmeðlima og upplifa.

Námsbekkir

Auk sakramentissamkomu er fólki boðið að dvelja í aðra klukkustund af námi í smærri umgjörð.

Börn fara í Barnafélagið, þar sem þau læra ritningarsögur, söngva og lexíur um Jesú og fagnaðarerindi hans sem henta aldri þeirra. Unglingar sækja svipaða námsbekki fyrir sína eigin aldurshópa.

Annan hvern sunnudag sækja fullorðnir sunnudagaskólann og læra ritningarbækurnar sem valdar voru til kirkjunáms það árið. Hina vikuna er þeim skipt í aðskilda námsbekki fyrir karla (þekkt sem Öldungasveit) og konur (þekkt sem Líknarfélagið).

Ef þið eruð ekki viss um hvert þið eigið að fara, spyrjið bara einhvern og þau eru fús að aðstoða ykkur við að finna rétta kennslustofu.
Members of the Sunday School Teacher's Council meet together to discuss Sunday School issues and learn from each other.

Önnur kirkjudagskrá

Ef þið sækið tilbeiðslusamkomur á sunnudögum með okkur eða eigið vin sem er meðlimur kirkju okkar, gætuð þið fengið boð um að taka þátt í einhverjum öðrum viðburðum í söfnuði ykkar. Til dæmis:
  • Félagslegum viðburðum, eins og jólaboðum.
  • Vikulegum hópviðburðum fyrir ungmenni.
  • Trúarskóla fyrir ungt fullorðið fólk til að læra ritningarnar og ræða saman.
  • Þjónustuverkefnum í samfélaginu.
  • Sjálfsbjargarnámskeiðum.
  • Tónleikum eða öðrum listrænum sýningum.

Algengar spurningar

Ykkur er meira en velkomið að koma eins og þið eruð klædd. Ef þið hafið áhyggjur af því að þið munið skera ykkur úr, reynum við að vera í betri fötum en hversdagslega, til að endurspegla lotningu okkar fyrir Guði. Algengasti klæðnaðurinn sem þið sjáið í kirkju er hvít skyrta og bindi fyrir karla og pils eða kjóll fyrir konur.
Við erum með gesti í næstum öllum söfnuðum, svo við erum vön að sjá ný andlit. Í stórum söfnuði áttar fólk sig kannski ekki einu sinni á því að þið eruð gestir. Á öðrum svæðum gæti fólk tekið eftir ykkur og heilsað. Hvort heldur sem er, ekki hika við að kynna ykkur og spyrja þeirra spurninga sem þið gætuð haft.
Nei. Þegar vatni og brauði sakramentisins er útdeilt í söfnuðinum, getið þið einfaldlega rétt bakkann áfram til næstu persónu og hallað ykkur síðan aftur og notið þjónustunnar það sem eftir er. Þið munuð sjá fólk bjóða sig fram til þátttöku á annan hátt, svo sem að svara spurningu kennara í sunnudagaskólanum, en þið þurfið ekki að rétta upp hönd ef það er ekki eitthvað sem þið viljið gera.
Nei. Við trúum á tíundarlögmálið sem er að finna í Biblíunni. Meðlimir okkar sem velja að greiða tíund gera það þó á sínum eigin tíma, ekki sem hluta af tilbeiðsluþjónustunni. Þið verðið ekki beðin um framlög á fundi.
Já! Þetta er fjölskylduvæn kirkja. Börn sitja með foreldrum sínum á aðalsakramentissamkomunni og taka síðan þátt í viðburðum með börnum eða unglingum á sínum aldri, meðan hinir fullorðnu fara í sunnudagaskóla. Námsbekkir barna og unglinga eru ætíð leiddir af tveimur eða fleiri fullorðnum. Í setustofu mæðra er næði til að næra ungbörn eða sinna öðrum þörfum þeirra.

Viljið þið fara í kirkju, en ekki einsömul?

Meðlimir kirkjunnar okkar sem bjóða sig fram sem trúboðar á ykkar svæði, geta heimsótt ykkur með góðum fyrirvara til að hjálpa ykkur að vita við hverju má búast og svara spurningum ykkar. Þeir geta jafnvel tekið frá sæti þegar þið eruð tilbúin til að koma.
Biðja um heimsókn
Lærið meira um kirkjusamfélagið
Kynnist Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu betur og sjáið hvað kirkjan getur boðið ykkur með þessari röð netpósta um kirkjusamfélag okkar.