Gamla testamentið 2022
Notkun Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann


„Notkun Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann,Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Gamla testamentið 2022 (2021)

„Notkun Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann,Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Kenning og sáttmálar 2022

Ljósmynd
Einstaklingur að tala í kennslustund í kirkju

Notkun Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann

Búa sig undir kennslu í sunnudagaskólanum

Sjálfsnám og fjölskyldunám á heimilinu ætti að vera megin uppistaða trúarnáms. Það á við um ykkur og þá sem þið kennið. Þegar þið búið ykkur undir kennslu, byrjið þá á því að leita eigin upplifana í ritningunum. Mikilvægasti undirbúningur ykkar mun fara fram er þið kannið ritningarnar og leitið innblásturs heilags anda.

Námsefnið Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur er mikilvægur hluti af bæði sjálfsnámi ykkar og undirbúningi ykkar til að kenna. Það mun stuðla að auknum skilningi á kenningarlegum reglum í ritningunum. Það mun líka gera ykkur kleift að innblása og bjóða meðlimum bekkjarins að nota Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur til að auðga bæði sjálfsnám og fjölskyldunám í ritningunum (til að fá hjálp við þetta, sjá þá „Hugmyndir til að hvetja til sjálfsnáms og fjölskyldunáms“ í þessu riti). Þegar þið gerið það, munið þá eftir að sýna þeim meðlimum bekkjarins gætni sem búa að fjölskylduaðstæðum sem ekki styðja reglubundið fjölskyldunám og fjölskyldukvöld.

Við undirbúning ykkar munu hugsanir og hughrif berast um þá sem þið kennið, hvernig meginreglurnar í ritningunum munu blessa líf þeirra og hvernig þið getið hvatt þá til að uppgötva þessar meginreglur þegar þeir læra ritningarnar sjálfir.

Kennsluhugmyndir

Þegar þið búið ykkur undir kennslu, gætuð þið hlotið enn meiri innblástur með því að kenna lexíudrögin í þessu riti. Lítið ekki á þessar hugmyndir sem nákvæm fyrirmæli, heldur fremur sem ábendingar til að glæða ykkar eigin innblástur. Þið þekkið meðlimi bekkjar ykkar og munuð jafnvel kynnast þeim betur er þið lærið saman í bekknum. Drottinn þekkir þá líka og mun innblása ykkur með bestu leiðunum til að hjálpa meðlimum bekkjarins að byggja á trúarnámi þeirra á heimilinu.

Mörg önnur úrræði eru ykkur tiltæk við undirbúning ykkar, þar á meðal hugmyndir í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur og kirkjutímaritunum. Til frekari upplýsingar um þessi og fleiri úrræði, sjá þá hlutann „Fleiri heimildir“ í þessu riti.

Sitthvað sem hafa þarf hugfast

  • Lærdómur um fagnaðarerindið er áhrifaríkastur þegar hann fer fram á heimilinu. Þið, sem kennarar, hafið þá mikilvægu ábyrgð að styðja við, hvetja til og byggja á heimanámi meðlima bekkjarins á fagnaðarerindinu heima við.

  • Trúarlegur viðsnúningur meðlima bekkjarins að Jesú Kristi og fagnaðarerindi hans, mun aukast eftir því sem þeir skilja og tileinka sér sannar kenningar. Hvetjið þá til að skrá eigin hughrif frá heilögum anda og bregðast við þeim.

  • Kennsla er meira en fyrirlestur, en hún er líka meira en bara að leiða umræður. Hluti af ábyrgð ykkar er að hvetja til fræðandi þátttöku sem byggist á ritningunum. Þið ættuð líka að miðla innblásnum skilningi sem þið hljótið við að læra ritningarnar.

  • Hafið í huga að margir meðlimir bekkjarins eru að upplifa þýðingarmiklar stundir við sitt nám heima fyrir á sömu ritningum og þið ræðið um í kennslustundinni. Þið getið stutt við trúarnám þeirra með því að gefa þeim fjölmörg tækifæri til að miðla því sem þeir læra heima.

  • Himneskur faðir vill að þið náið árangri sem kennarar. Hann hefur séð ykkur fyrir mörgum úrræðum til þess, þar á meðal kennararáðsfundi. Á þeim fundum getið þið ráðgast við aðra kennara um áskoranir ykkar. Þið getið líka rætt og iðkað reglur kristilegrar kennslu.

  • Sumir læra best þegar þeim gefst tækifæri til að kenna. Íhugið að fá meðlimi bekkjarins, líka ungmenni, til að kenna hluta af lexíunni. Byggið þá ákvörðun á þörfum og hæfni meðlima bekkjarins. Ef þið fáið meðlimi bekkjarins til að kenna, gefið ykkur þá tíma til að hjálpa þeim að undirbúa sig með fyrirvara með því að nota hugmyndirnar í þessu riti og í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Hafið hugfast að sem kallaðir kennarar, þá berið þið endanlega ábyrgð á því hvað kennt er í bekknum.

Í þessu riti eru lexíudrög fyrir hverja viku ársins. Á sunnudögum, þegar sunnudagaskóli er ekki kenndur, munu meðlimir bekkjarins áfram lesa Gamla testamentið á heimili sínu, samkvæmt námsáætluninni í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Þegar sunnudagaskólinn er kenndur, getið þið valið að sleppa úr lexíu eða sameina þær.