Kenning og sáttmálar 2021
Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur


„Notkun,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Kenning og sáttmálar 2021 (2020)

„Notkun,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2021

Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur

Fyrir hverja er þessi kennslubók?

Þetta námsefni er fyrir alla einstaklinga og fjölskyldur í kirkjunni. Því er ætlað að hjálpa ykkur að læra fagnaðarerindið – hvort heldur á eigin spýtur eða með fjölskyldu ykkar. Ef þið hafið ekki áður lært fagnaðarerindið reglubundið, getur þessi kennslubók hjálpað ykkur að byrja á því. Ef þið hafið þegar tileinkað ykkur góðar námsvenjur, gæti þessi kennslubók hjálpað ykkur að hljóta innihaldsríkari upplifanir.

Hvernig ber mér að nota þessa kennslubók?

Notið kennslubókina á hvern þann hátt sem hún gagnast ykkur. Ykkur gæti fundist hún gagnleg sem leiðarvísir eða hjálp við einkanám og fjölskyldunám á ritningunum. Þið gætuð líka notað hana fyrir kvöldstund heima við. Í lexíudrögunum er áhersla lögð á mikilvægar reglur í Kenningu og sáttmálum, hugmyndir og verkefni fyrir einstaklinga og fjölskyldur eru lögð til og svæði til að skrá hughrif ykkar.

Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur er ekki ætlað að leysa af hendi annað gott sem þið þegar gerið eða keppa við það. Fylgið leiðsögn andans við að ákveða hvernig best mætti haga einkanámi ykkar á orði Guðs.

Hvernig tengist þessi kennslubók því sem á sér stað í kirkju?

Lexíudrög þessa námsefnis miðast við vikulega lestrardagskrá. Kom, fylg mér – Fyrir Barnafélagið og Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann fylgja sömu áætlun. Kennarar ykkar í kirkju munu gefa ykkur kost á að miðla upplifunum ykkar, hugsunum sem og spurningum um ritningarvers sem þið hafið lært á heimili ykkar, til að styðja ykkur við að læra fagnaðarerindið á heimili ykkar og lifa eftir því.

Þar sem kennsla sunnudagaskólans er einungis tvisvar í mánuði, gætu kennarar sunnudagaskólans kosið að sleppa lexíudrögum eða sameina þau, til að fylgja þessari vikulegu áætlun. Það gæti líka verið nauðsynlegt þær vikur sem kirkjusamkomur falla niður sökum stikuráðstefnu eða af öðrum ástæðum. Þær vikur eruð þið hvött til að halda áfram að læra Kenningu og sáttmála á heimili ykkar.

Þarf ég að fylgja áætluninni?

Áætlunin mun hjálpa ykkur að ljúka lestri Kenningar og sáttmála fyrir árslok. Að auki, getur það leitt til mikilvægrar reynslu heima við, í kirkjunni og annars staðar að fylgja sömu áætlun og allir aðrir gera. Látið áætlunina þó ekki íþyngja ykkur eða skylda ykkur til að lesa hvert einasta vers; hún er einungis til að hjálpa ykkur að halda jöfnum námshraða. Mikilvægast er að þið séuð að læra fagnaðarerindið sem einstaklingar og fjölskylda.

Ljósmynd
hjón læra ritningarnar