Kenning og sáttmálar 2021
Trúarumbreyting er markmið okkar


„Trúarumbreyting er markmið okkar,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Kenning og sáttmálar 2021 (2020)

„Trúarumbreyting er markmið okkar,“ Kom, fylgið mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2021

Ljósmynd
kona lærir ritningarnar

Trúarumbreyting er markmið okkar

Markmið alls trúarnáms og kennslu, er að auka trúarlegan viðsnúning okkar til Jesú Krists og hjálpa okkur að verða líkari honum. Af þessari ástæðu, leitum við ekki einungis nýrra upplýsinga þegar við lærum fagnaðarerindið, heldur viljum við verða „[ný sköpun]“ (2. Korintubréfið 5:17). Í því felst að við reiðum okkur á að himneskur faðir og Jesús Kristur breyti hjarta, viðhorfi, verkum og eðli okkar.

Að læra fagnaðarerindið á þann hátt að það styrki trú okkar og leiði til undursamlegrar trúarumbreytingar, gerist ekki í einni svipan. Það er gert með því að ná til hjarta og heimilis einstaklinga, utan kennslustofunnar. Það krefst stöðugrar, daglegrar viðleitni að skilja og tileinka sér fagnaðarerindið. Himneskur faðir væntir þess þó ekki að við gerum það einsömul – hann mun senda heilagan anda til að hjálpa okkur að snúast til trúar.

Heilagur andi leiðir okkur í sannleikann og vitnar um þann sannleika (sjá Jóhannes 16:13). Hann upplýsir hug okkar, vekur skilning okkar og snertir hjarta okkar með opinberun frá Guði, uppsprettu alls sannleika. Heilagur andi hreinsar hjarta okkar. Hann vekur okkur þrá til að lifa eftir sannleikanum og hvíslar að okkur hvernig við getum gert það. Sannlega mun „andinn heilagi … kenna [okkur] allt“ (Jóhannes 14:26).

Við ættum því fyrst og fremst að sækjast eftir samfélagi andans af þeirri ástæðu, er við tileinkum okkur, lærum og kennum fagnaðarerindið. Það markmið ætti að stjórna vali okkar, hugsunum og verkum. Við ættum að leita þess sem laðar að áhrif andans og hafna öllu því sem heldur þeim fjarri – því við vitum, að ef við getum verið verðug návistar heilags anda, getum við einnig verið verðug þess að dvelja í návist himnesks föður og sonar hans, Jesú Krists.