Námshjálp
ÞJS, Matteus 12


ÞJS, Matteus 12:37–38. Samanber Matteus 12:43–44; sjá einnig ÞJS, Lúkas 12:9–12

Hver sá, sem mælir gegn heilögum anda, mun ekki hljóta fyrirgefningu.

37 Þá komu þar nokkir hinna lærðu og sögðu við hann: Meistari, ritað er að hver synd verði fyrirgefin, en þér segið, hverjum þeim sem mælir gegn heilögum anda, mun ekki verða fyrirgefið. Og þeir spyrja hann og segja; Hvernig má það vera?

38 Og hann sagði við þá: Þegar óhreinn andi fer út af manni, reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis, en finnur ekki, en þegar maður mælir gegn heilögum anda, þá segir hann: Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór. Og er hann kemur, finnur hann sig tóman, sópaðan og prýddan, því hinn góði andi skilur hann eftir einan.