Námshjálp
ÞJS, Jóhannes 13


ÞJS, Jóhannes 13:8–10. Samanber Jóhannes 13:8–10

Jesús laugar fætur postulanna til að uppfylla lögmál Gyðinga.

8 Pétur sagði við hann: Eigi þarft þú að lauga fætur mína. Jesús svaraði honum: Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga hlutdeild í mér.

9 Símon Pétur segir við hann: Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendur mínar og höfuð mitt.

10 Jesús segir við hann: Sá sem laugað hefur hendur sínar og höfuð sitt, þarf ekki að laugast nema um fætur, heldur er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir. Nú var þetta siður Gyðinga undir lögmáli þeirra og því gjörði Jesús þetta til þess að lögmálið mætti uppfyllt verða.