Safn
Í þeim helga garðinum


Í þeim helga garðinum

Íhugult

1Í þeim helga garðinum,

þú mig leystir handa þér.

Þjáður í Getsemane,

Herra, þú baðst fyrir mér.

Herra, þú baðst fyrir mér.

Meðtak kramið hjarta mitt,

megi verk mín þóknast þér.

Þjáður í Getsemane,

Herra, þú baðst fyrir mér.

Herra, þú baðst fyrir mér.

2Ég tek þína fúsu gjöf,

táknin ber að vörum mér.

Tryggir öllum sáttargjörð,

Herra, líf þitt gafstu mér.

Herra, líf þitt gafstu mér.

Meðtak kramið hjarta mitt,

megi verk mín þóknast þér.

Tryggir öllum sáttargjörð,

Herra, líf þitt gafstu mér.

Herra, líf þitt gafstu mér.

3Ég ber bikarinn að vör,

beygi mig þá fyrir þér.

Brotið holdið býður mér.

Ég nú vitna fyrir þér.

Ég nú vitna fyrir þér.

Meðtak kramið hjarta mitt,

megi verk mín þóknast þér.

Megi ljúka þjáning þín,

Herra, ég mig helga þér.

Herra, ég mig helga þér.

Lag og texti eftir Tammy Simister Robinson

© 2003 Tammy Simister Robinson. Allur réttur áskilinn. Þennan söng má afrita til nota í kirkju eða heima en ekki í hagnaðarskyni. Þessi athugasemd skal fylgja hverju afriti.