Börn og unglingar
Halda áfram að sækja fram


„Halda áfram að sækja fram,“ Kynningarleiðarvísir fyrir börn og unglinga í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (2019)

„Halda áfram að sækja fram,“ Kynningarleiðarvísir fyrir börn og unglinga í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

Halda áfram að sækja fram

Þið munuð njóta stuðnings í þeirri viðleitni ykkar að fylgja Kristi, er þið þroskist og vaxið á þessum fjórum sviðum með trúarnámi, þjónustu og viðburðum og eigin framþróun.

Trúarnám

Trúarnám á heimilinu og í kirkju byggir andlega undirstöðu fyrir hvaðeina í lífi ykkar. Þegar þið tileinkið ykkur það sem þið lærið, gætuð þið fundið leiðir til að fylgja Jesú Kristi einstaklingsbundið, með fjölskyldu ykkar eða sveit eða námsbekk.

Ljósmynd
einstaklingur les ritningarnar

Þjónusta og viðburðir

Þegar þið takið þátt í þjónustu og viðburðum, getið þið skemmt ykkur með fjölskyldu, vinum og leiðtogum um leið og þið lærið leikni, upplifið eitthvað nýtt og þjónið öðrum. Þið getið líka þjónað með því að taka þátt í helgiathöfnum. Þjónusta og viðburðir hafa Lúkas 2:52 að leiðarljósi og eru vikulega og fjöldaga viðburðir fyrir ungmenni, svo sem útilegur, musterisferðir og ráðstefnur Til styrktar ungmennum (TSU).

Ljósmynd
ungmenni við þjónustu

Eigin framþróun

Þið getið fylgt Jesú Kristi við eigin framþróun, er þið leitið opinberunar um hvernig þið getið þroskast og vaxið á öllum sviðum lífs ykkar. Þið veljið að hverju þið viljið vinna og getið fengið hjálp frá fjölskyldu, jafnöldrum og leiðtogum.

Ljósmynd
kona og karl á hlaupum saman