Bækur og lexíur
Grunnbekkur trúaratriða: Sunnudagaskólabekkur fyrir nýja meðlimi og vini


Grunnbekkur trúaratriða: Sunnudagaskólabekkur fyrir nýja meðlimi og vini

Deildarráð geta valið að skipuleggja valfrjálsan sunnudagaskólabekk sem nefnist Grunnbekkur trúaratriða. Þessum námsbekk er ætlað að hjálpa nýjum meðlimum og vinum að:

  1. Finna sig velkomna, njóta vellíðunar og finna að þeir séu mikils metnir í deildinni eða greininni.

  2. Afla sér reynslu sem býr þá undir ævilangan lærisveinsdóm í kirkju frelsarans.

  3. Læra grunnsannleika hins endurreista fagnaðarerindis frelsarans.

Þótt þessi námsbekkur sé ætlaður fullorðnum, nýjum meðlimum og vinum, þá má líka bjóða meðlimum sem hafa komið aftur. Börn og ungmenni sækja að öllu jöfnu námsbekki með sínum aldurshópum.

Á þessu námskeiði eru umræðuefni og upplifanir til að hjálpa nýjum meðlimum og vinum að verða ævilangir lærisveinar Jesú Krists. Íhugið að einblína á efni og upplifanir sem hafa hvað mest gildi fyrir fólkið í bekknum.

Eftir tvo til fjóra mánuði, taka nýir meðlimir þátt í námsbekk sunnudagaskólans í Kom, fylg mér með öllum hinum í deildinni.