Boðskapur heimsóknarkennara, desember 2017
Að vera fús til að bera hver annars byrðar
Kynnið ykkur efnið sem hér er í bænaranda og leitið innblásturs til að vita hverju best er að miðla. Hvernig getur skilningur á tilgangi Líknarfélagsins búið dætur Guðs undir blessanir eilífs lífs?
Trú, fjölskylda, líkn
„Við erum umkringd þeim sem þarfnast umönnunar okkar, hvatningar, stuðnings okkar, huggunar og vinsemdar,“ sagði Thomas S. Monson forseti. „Við erum hendur Drottins hér á jörðunni, háð því boði að þjóna og lyfta börnum hans. Hann treystir á sérhvert okkar.“1
Henry B. Eyring forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, sagði: „Mikil umbreyting hófst í hjarta ykkar þegar þið genguð í kirkjuna. Þið gerðuð sáttmála og þið hlutuð loforð sem tók að breyta eðli ykkar. …
… Þið lofuðuð að hjálpa Drottni við að létta byrðar [annarra] og hugga [þá]. Þegar þið tókuð á móti gjöf heilags anda, hlutuð þið kraft til að aðstoða við að létta byrðar þeirra.“2
„Við viljum nota ljós fagnaðarerindisins til þess að sjá aðra eins og frelsarinn sér þá – með samúð, von og kærleika,“ sagði Jean B. Bingham, aðalforseti Líknarfélagsins. „Sá dagur mun koma þar sem við munum hafa fullkominn skilning á hjörtum annarra og verðum þakklát fyrir að miskunn verði beint að okkur – á sama hátt og við beinum kærleiksríkum hugsunum og orðum til annarra. …
Skylda okkar eða forréttindi er að umfaðma framfarir hjá öllum, á sama tíma og við vinnum að því að verða líkari frelsara okkar.“3
Þegar við berum byrðar hver annars og höldum sáttmála okkar, þá greiðum við Jesú Kristi leið til að lækna aðra. Öldungur Jeffrey R. Holland, í Tólfpostulasveitinni, kenndi: „Með tilliti til hins óskiljanlega gjalds krossfestingarinnar og friðþægingarinnar, þá lofa ég ykkur því að hann mun ekki snúa baki við okkur nú. Þegar hann segir við hina fátæku í anda: ,Komið til mín,‘ þá merkir það að hann þekkir leiðina út og að hann þekkir leiðina upp. Hann þekkir leiðina af því að hann hefur farið hana. Hann þekkir veginn, því að hann er vegurinn.“4
Viðbótarritningagreinar
Matt 25:40; Gal 6:2; Mósía 2:17; 18:8–9
© 2017 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in Germany. Samþykkt á ensku: 6/17. Þýðing samþykkt: 6/17. Þýðing á Visiting Teaching Message, December 2017. Icelandic. 97932 190