2015
Breyting hjarta míns
febrúar 2015


Æskufólk

Breyting hjarta míns

Höfundur býr í Fortaleza, Brasilíu.

Þegar ég fyrst lærði um hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists, fann ég andann bera vitni um sannleika þess. Með bæn varð vitnisburður minn jafnvel enn sterkari og ég ákvað að láta skírast.

Stuttu eftir að ég skírðist, tók fólkið í deildinni minni að spyrja mig að því hvernig mér litist á að þjóna í trúboði. Svo ég sé fyllilega einlægur, þá vissi ég ekki hvað segja skyldi. Sú hugsun að fara frá fjölskyldu minni og bíða með skólann virtist afleit.

Ég tók síðan dag einn að hugsa um mína trúarlegu umbreytingu. Ég man eftir því að trúboðarnir sem kenndu no hyp mér svöruðu spurningum mínum af þolinmæði og hjálpuðu mér að skilja fagnaðarerindið. Mér varð ljóst að án hjálpar þeirra hefði ég aldrei uppgötvað hina sönnu kirkju. Um leið og mér varð það ljóst, tók ég að þrá í hjarta mínu að þjóna. Ég fann að andinn hvatti mig til að þjóna í fastatrúboði.

Ég veit að trúboðsstarfið er verk okkar himneska föður og að við getum hjálpað til við að leiða sálir til dásamlegrar þekkingar á hinu endurreista fagnaðarerindi.