2023
Síðasta orðið: Leitið skilnings
Ágúst 2023


„Leitið skilnings,“ Til styrktar ungmennum, ágúst. 2023.

Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, ágúst 2023

Leitið skilnings

Ljósmynd
kona með olíulampa

Myndskreyting: Emily Jones

Þegar við leitum aukins skilnings á fagnaðarerindi Jesú Krists, verður tilgangur okkar að vera sá að efla trú okkar á Guð og hans guðlegu sæluáætlun og á Jesú Krist og friðþægingarfórn hans og ná fram varanlegri trúarumbreytingu. Slík aukin trú og trúarumbreyting, munu hjálpa okkur að gera og halda sáttmála við Guð, auka þrá okkar til að fylgja Jesú Kristi og vekja í okkur raunverulega andlega umbreytingu. Sú umbreyting mun leiða til hamingjusamara, árangursríkara og heilbrigðara lífs og stuðla að eilífri yfirsýn.

Ljósmynd
piltur les ritningar

Til að ná því marki, þurfum við að hlýða frelsaranum, sökkva okkur niður í ritningarnar, gleðjast yfir þeim, læra kenningu hans og reyna að lifa að hans hætti. Einungis þannig munum við þekkja hann, Jesú Krist, og rödd hans og vita að okkur mun aldrei hungra eða þyrsta, ef við komum til hans og trúum á hann (sjá Jóhannes 6:35)

Ljósmynd
piltur á bæn

Það gerist ekki af hendingu. Samstilla okkur sjálf æðstu áhrifum guðleikans, er ekki einfalt mál; það krefst þess að við áköllum Guð og lærum hvernig hafa á fagnaðarerindi Jesú Krists sem þungamiðju lífs okkar.

Ljósmynd
stúlka með höndina yfir hjartanu

Ég ber vitni um að þegar við lærum fagnaðarerindi Jesú Krists einlæglega, hjartanlega og af alúð og ábyrgð og kennum það öðrum af einlægum ásetningi og með áhrifum andans, geta þessar kenningar umbreytt hjörtum og innblásið þrá til að lifa í samhljóm við sannleika Guðs.