2021
Verja trú mína
Janúar 2021


„Verja trú mína,“ Til styrktar æskunni, jan. 2021, 27.

Sterkur grundvöllur

Verja trú mína

Ljósmynd
vinir

Teikning eftir Luca Di Bartolomeo

Kvöld eitt var ég með hópi vina. Við vorum að spjalla og þeir byrjuðu að slúðra um aðra vini mína sem ekki voru á staðnum. Mér leið óþægilega með það sem fór þeirra á milli. Andinn hvatti mig þá til að bjóða þeim birginn og verja það sem ég trúði á.

Án þess að hika frekar sagði ég þeim að mér liði ekki þægilega með það sem þeir voru að segja og bað þá að slúðra ekki þegar ég væri með þeim. Þeir sögðu að þetta væri bara partur af lífinu og skipti ekki máli. Ég hlustaði á rök þeirra og útskýrði því næst trú mína, án þess að æsa mig. Ég stóð síðan upp og gekk í burtu.

Upplifun mín þetta kvöld fékk mig til að hugsa um það sem Joseph Smith gekk í gegnum. Þegar Joseph Smith endurheimti gulltöflurnar varð hann fyrir miklum ofsóknum. Það skipti ekki máli hversu miklar ofsóknirnar urðu, Joseph Smith stóð á sínu og missti ekki móðinn. Guð var hjá Joseph Smith og hjálpaði honum og ég vissi að Guð væri líka hjá mér þegar ég gerði það sem rétt væri.

Ég missti nokkra vini við það að verja trú mína þetta kvöld og það hryggði mig. En ég fann frið og huggun fyrir að gera það sem rétt var. Stuttu síðar þakkaði einn vina minna fyrir það sem ég hafði sagt. Ég öðlaðist vináttu til baka sem var sterkari en áður vegna þessa.

Andrew F., Utah, Bandaríkjunum