„Minn helgi lundur,“ Barnavinur, janúar 2025, 18–19.
Ég get spilað það!
Minn helgi lundur
Af tilfinningu [fjórðapartsnóta] = 50–65
Joseph Smith hélt í sinn helga trjálund.
Visku Guðs vildi og kraup þar á grund.
Bjartur ljósstólpi birtist er bað hann af þrá.
Himnaföður og son hans, Krist Jesú, hann sá,
svífandi‘ í loftinu skært,
svarið svo gætu þeir fært.
Viðlag: Ég mun halda‘ í minn helga lund,
fjarri heimsins kliði á heilagan fund.
Ég mun biðja‘ um svar.
Ég veit hann er þar.
Ég mun halda‘ í lund helgunar.
Margt hér má velja sem mikilvægt er.
Hver er sú leið sem hann svo ætlar mér?
Ef ég bið hér nú bænar í trú á hans son,
andinn heilagi hans mun þá vekja mér von.
Himneskur faðir er þar,
fús til að færa mér svar.
Viðlag
Ég mun halda‘ í lund helgunar.