Ritningar
Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám


„Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám,“ Hugmyndir fyrir ritningarnám (2021)

„Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám,“ Hugmyndir fyrir ritningarnám

Ljósmynd
kona lærir ritningarnar

Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám

Hér eru nokkrar einfaldar aðferðir til að auðga nám ykkar á orði Guðs í ritningunum.

Biðja um innblástur

Ritningarnar geyma orð Guðs. Meðan þið lærið í þeim, biðjið þá himneskan föður um leiðsögn hans og meðtakið anda hans til að að skilja þær.

Gæta að sannleika um Jesú Krist

Ritningarnar kenna okkur að allt vitni um Krist (sjá 2. Nefí 11:4; HDP Móse 6:63), gætið því að honum í atburðum, frásögnum og kenningum ritninganna. Íhugið að útskýra eða merkja við vers sem kenna um frelsarann og hvernig fylgja á honum.

Gæta að innblásnum orðum og orðtökum

Þið gætuð fundið að ákveðin orð og orðtök í ritningunum vekja áhuga ykkar, eins og þau væru rituð sérstaklega fyrir ykkur. Þau gætu vakið persónulega samsvörun og innblásið og hvatt ykkur. Íhugið að merkja við þau í ritningum ykkar eða skrifa um þau í námsdagbók ykkar.

Leita sannleika fagnaðarerindisins

Stundum er sannleikur fagnaðarerindisins (oft nefndur kenning eða reglur) settur beint fram og stundum er hann settur fram í dæmisögu eða frásögn. Spyrjið ykkur sjálf: „Hvaða sannleikur fagnaðarerindisins er kenndur í þessum versum?“

Hlusta á andann

Gætið að hugsunum ykkar og tilfinningum, jafnvel þótt þær virðist ekki tengjast efninu sem þið lesið. Þau hughrif gætu einmitt tengst því sem himneskur faðir ykkar vill að þið lærið og upplifið.

Ljósmynd
kona lærir ritningarnar 2

Heimfæra ritningarnar upp á eigið líf

Hugleiðið hvernig þær sögur og kenningar sem þið lesið eiga við um líf ykkar sjálfra. Þið gætuð t.d. spurt: „Hvaða upplifanir hef ég hlotið sem gætu tengst lestrarefninu?“ eða „Hvernig get ég fylgt fordæmi þessa einstaklings í ritningunum?“

Spyrja spurninga

Það getur hjálpað ykkur að ákveða hvað þið ættuð að læra ef þið spyrjið spurninga. Þegar þið lærið ritningarnar, geta spurningar líka komið upp í hugann. Þær spurningar gætu tengst lestrarefninu eða lífi ykkar almennt. Íhugið þessar spurningar og leitið svara er þið haldið áfram að læra ritningarnar. Eftir nám ykkar, spyrjið þá hvað meira Guð myndi vilja að þið lærðuð og verið vakandi fyrir svörum næstu klukkustundir og daga á eftir.

Nota hjálpartæki ritningarnáms

Notið neðanmálstilvísanir til að auka skilning ykkar á þeim versum sem þið lesið, sem og Topical Guide, Bible Dictionary og Leiðarvísi að ritningunum (scriptures.ChurchofJesusChrist.org) og annað sem hjálpar við námið.

Íhuga samhengi ritningarversa

Þið getið hlotið mikilvægan skilning á versi, ef þið íhugið samhengið – aðstæður eða vettvang versins. Það getur t.d. aukið skilning ykkar á merkingu orða spámannsins að vera kunnug bakgrunni og trú þess fólks sem hann ræddi við.

Ljósmynd
maður lærir ritningarnar

Skrá hugsanir og tilfinningar

Hægt er að skrá hughrifin sem berast við námið á marga vegu. Þið gætuð t.d. merkt við mikilvægt orð eða orðtak og skráð hugsanir ykkar sem athugasemd í ritningarnar ykkar. Þið gætuð líka haldið dagbók yfir innblásturinn, tilfinningarnar og hughrifin sem þið hljótið. Þið gætuð einnig skráð spurninguna sem þið spyrjið áður en þið hefjið námið og skráð síðan svörin sem þið voruð leidd að.

Læra orð síðari daga spámanna og postula

Lesið það sem síðari daga spámenn og postular hafa kennt um reglurnar sem þið finnið í ritningunum. Boðskapur þeirra er fáanlegur á „Aðalráðstefna,“ á „KirkjaJesuKrists.is,“ og í öðrum söfnum í Gospel Library.

Lesa sögurnar

Lesið sögurnar í ritningunum, leitist við að skilja efni þeirra (tíma, staðsetningu, ræðumann og áheyrendur). Myndskreyttu ritningarsögurnar eru góðar í þessum tilgangi, einkum fyrir börn og meðlimi sem eru síður kunnugir ritningunum.

Miðla skilningi

Umræða um það sem þið lærið í einkanámi ykkar, er góð leið til að kenna öðrum og styrkir skilning ykkar á því sem þið lásuð.

Lifa eftir því sem þið lærið

Ritningarnám getur aukið skilning okkar og hvatt okkur til að breyta eigin lífsmáta. Hlustið á það sem andinn hvetur ykkur til að gera við lesturinn og einsetjið ykkur síðan að bregðast við þeirri hvatningu.