Námshjálp
ÞJS, 2. Mósebók 33


ÞJS, 2. Mósebók 33:20, 23. Samanber 2. Mósebók 33:20, 23

Enginn syndugur maður getur séð ásjónu Guðs og haldið lífi.

20 Og hann sagði við Móse: Þú getur eigi séð ásjónu mína á þessari stundu, án þess að reiði mín tendrist einnig gegn þér og ég tortími þér og fólki þínu. Því að enginn maður á meðal þeirra mun sjá mig á þessum tíma og lifa, því þeir eru mjög syndugir. Og enginn syndugur maður hefur nokkru sinni, né heldur mun nokkur syndugur maður nokkru sinni sjá mig og lífi halda.

23 Og ég mun taka hönd mína frá, og þú munt sjá bak mitt. En ásjónu mína fær enginn séð, líkt og á öðrum tímum, því að ég er reiður lýð mínum, Ísrael.