Ritningar
Kenning og sáttmálar 99


99. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til Johns Murdock 29. ágúst 1832, í Hiram, Ohio. Í rúmt ár hafði John Murdock prédikað fagnaðarerindið, og á meðan börn hans dvöldu hjá öðrum fjölskyldum í Ohio, móðurlaus eftir að kona hans, Julia Clapp, dó í apríl 1831.

1–8, John Murdock er kallaður til að boða fagnaðarerindið, og þeir, sem taka á móti honum, taka á móti Drottni og munu hljóta miskunn.

1 Sjá, svo mælir Drottinn til þjóns síns Johns Murdock: Þú ert kallaður til þess að fara til landsvæðanna í austri, hús úr húsi, þorp úr þorpi, borg úr borg, til þess að kunngjöra íbúum þeirra ævarandi fagnaðarerindi mitt, mitt í aofsóknum og ranglæti.

2 Og hver, sem tekur á móti þér, atekur á móti mér, og þú munt hafa kraft til að boða orð mitt eins og hinn heilagi andi minn bsýnir þér.

3 Og hver, sem tekur á móti þér aeins og lítið barn, tekur á móti bríki mínu. Og blessaðir eru þeir, því að þeir munu cmiskunn hljóta.

4 En hverjum, sem hafnar þér, mun faðir minn ahafna, og húsi hans. Og þú skalt hreinsa bfætur þína á leyndum stöðum á leið þinni, sem vitnisburð gegn þeim.

5 Og sjá og tak eftir, ég akem skjótt til að bdæma, til að sannfæra alla um óguðleg verk þeirra, sem þeir hafa unnið gegn mér, eins og skráð er af mér í bókinni.

6 Og sannlega segi ég þér nú, að ekki er æskilegt að þú farir fyrr en séð hefur verið fyrir börnum þínum og þau hafa umhyggjusamlega verið send til biskupsins í Síon.

7 Og eftir nokkur ár, ef þú æskir þess af mér, mátt þú einnig fara til hins góða lands til að fá erfðahluta þinn —

8 Að öðru leyti skalt þú halda áfram og boða fagnaðarerindi mitt, auns þú ert burtu numinn. Amen.