Ritningar
Kenning og sáttmálar 78


78. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Kirtland, Ohio, í mars 1832. Þann dag höfðu spámaðurinn og aðrir leiðtogar safnast saman til að ræða málefni kirkjunnar. Upprunalega sagði þessi opinberun spámanninum, Sidney Rigdon og Newel K. Whitney að ferðast til Missouri og skipuleggja kaupsýslu- og útgáfustarf kirkjunnar með því að stofna „fyrirtæki“ sem hefði yfirumsjón með þessu starfi og aflaði fjár til stofnunar Síonar og hjálpar hinum fátæku. Þetta fyrirtæki, sem kallaðist Sameinaða fyrirtækið, var stofnað í apríl 1832 og lagt niður 1834 (sjá kafla 82). Nokkru eftir að það var lagt niður kom, að ráði Josephs Smith, setningin „málefnum forðabúrs fyrir hina fátæku“ í stað „kaupsýslu og útgáfustarf“ í opinberuninni og orðið „regla“ kom í stað „fyrirtækis.“

1–4, Hinir heilögu skulu stofna og reka forðabúr; 5–12, Viturleg meðferð eigna þeirra mun leiða til sáluhjálpar; 13–14, Kirkjan skal vera óháð jarðnesku valdi; 15–16, Míkael (Adam) þjónar undir stjórn hins heilaga (Krists); 17–22, Blessaðir eru hinir staðföstu, því að þeir munu erfa alla hluti.

1 Drottinn talaði til Josephs Smith yngri og sagði: Hlýðið á mig, segir Drottinn Guð yðar, þér, sem eruð vígðir hinu aháa prestdæmi kirkju minnar og safnast hafið saman —

2 Og hlustið á aráðleggingar hans, sem hefur bvígt yður frá upphæðum, sem mæla mun vísdómsorð í eyru yðar, svo að þér megið hljóta sáluhjálp í því, sem þér hafið borið undir mig, segir Drottinn Guð.

3 Því að sannlega segi ég yður: Tíminn er kominn og er í nánd. Og sjá, og tak eftir, nauðsynlegt hlýtur að vera að fast askipulag verði hjá fólki mínu við framkvæmd og fyrirkomulag á málum bforðabúrsins fyrir hina cfátæku meðal fólks míns, bæði á þessum stað og í landi dSíonar —

4 Kirkju minni til varanlegs og ævarandi skipulags og reglu og þeim málstað til stuðnings, sem þér hafið tekið að yður, manninum til sáluhjálpar og föður yðar, sem er á himnum, til dýrðar —

5 Svo að þér séuð ajafnir í himneskum efnum, já, og einnig jarðneskum til að öðlast hið himneska.

6 Því að ef þér eruð ekki jafnir í jarðneskum efnum, getið þér ekki náð því himneska að jöfnu —

7 Því að ef þér viljið, að ég gefi yður stað í hinum ahimneska heimi, verðið þér að bbúa yður undir það með því að cgjöra það, sem ég hef boðið yður og krafist af yður.

8 Og sannlega, svo segir Drottinn nú: Nauðsynlegt er, að allt verði gjört mér til adýrðar af yður, sem sameinast hafið í þessari breglu —

9 Eða með öðrum orðum, látið þjón minn Newel K. Whitney og þjón minn Joseph Smith yngri og þjón minn Sidney Rigdon sitja í ráði með hinum heilögu, sem í Síon eru —

10 Ella leitast aSatan við að snúa hjörtum þeirra frá sannleikanum og blinda þá, svo að þeir skilji ekki það, sem þeim er fyrirbúið.

11 Þess vegna gef ég yður fyrirmæli um að vera viðbúin og skipulögð með bandalagi eða ævarandi asáttmála, sem ekki er unnt að rjúfa.

12 Og sá, sem rýfur hann, mun missa embætti sitt og stöðu sína í kirkjunni og verða ofurseldur ahirtingu Satans, þar til dagur endurlausnarinnar rennur upp.

13 Sjá, þetta er undirbúningurinn, sem ég veiti yður, og grundvöllurinn og fyrirmyndin, sem ég gef yður til að þér getið uppfyllt boðin, sem yður eru gefin —

14 Svo að fyrir mína forsjá fái kirkjan staðið óháð, ofar öllum öðrum skepnum undir hinum himneska heimi, þrátt fyrir það aandstreymi sem þér munuð mæta —

15 Og þér getið náð þeirri akórónu, sem yður er fyrirbúin, og orðið bstjórnendur margra ríkja, segir Drottinn Guð, hinn heilagi Síonar, sem lagt hefur grunninn að cAdam-ondi-Ahman —

16 Sem útnefnt hefur aMíkael höfðingja yðar og tryggt fótfestu hans og sett hann í upphæðir og veitt honum lykla sáluhjálpar undir ráði og stjórn hins heilaga, sem er án upphafs daganna eða loka lífsins.

17 Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér eruð lítil börn, og þér hafið enn ekki skilið hversu miklar þær blessanir eru, sem faðirinn heldur í höndum sér og hefur fyrirbúið yður.

18 Og þér fáið ei aborið alla hluti nú, en verið samt vonglaðir, því að ég mun bleiða yður. Ríkið er yðar og blessanir þess eru yðar og auðæfi ceilífðarinnar eru yðar.

19 Og sá, sem veitir öllu viðtöku með aþakklæti, mun dýrðlegur gjörður, og það sem jarðarinnar er mun bætast honum, jafnvel bhundraðfalt, já, meira.

20 Gjörið þess vegna það, sem ég hef boðið yður, segir lausnari yðar, sjálfur sonurinn aAhman, sem gjörir allt til reiðu áður en hann btekur yður —

21 Því að þér eruð akirkja frumburðarins, og hann mun btaka yður upp í skýi og útnefna hverjum manni sinn hlut.

22 Og sá, sem er trúr og ahygginn bráðsmaður, mun erfa calla hluti. Amen.