Ritningar
Kenning og sáttmálar 38


38. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Fayette, New York, 2. janúar 1831. Tilefnið var ráðstefna kirkjunnar.

1–6, Kristur skapaði alla hluti; 7–8, Hann er mitt á meðal sinna heilögu, sem munu brátt sjá hann; 9–12, Allt hold er spillt frammi fyrir honum; 13–22, Hann hefur geymt sínum heilögu land fyrirheitsins um tíma og eilífð; 23–27, Hinum heilögu boðið að vera eitt og meta hver annan sem bróður; 28–29, Sagt fyrir um styrjaldir; 30–33, Hinum heilögu skal gefinn kraftur frá upphæðum og þeir fara út meðal allra þjóða; 34–42, Kirkjunni er boðið að annast hina fátæku og þurfandi og leita auðæfa eilífðarinnar.

1 Svo segir Drottinn Guð yðar, sjálfur Jesús Kristur, hinn mikli aÉg Er, Alfa og Ómega, bupphafið og endirinn, sá hinn sami, er leit yfir hina miklu víðáttu eilífðarinnar og allar cserafsveitir himins, dáður en heimurinn var egjörður —

2 Sá hinn sami, er aveit alla hluti, því að ballt er fyrir augum mínum —

3 Ég er hinn sami, sem talaði og heimurinn varð atil, og fyrir minn tilverknað urðu allir hlutir til.

4 Ég er hinn sami, sem tók aSíon Enoks að mínu eigin brjósti, og sannlega segi ég, jafnvel alla þá, sem btrúað hafa á nafn mitt, því að ég er Kristur, og í eigin nafni, í krafti þess cblóðs, sem ég hef úthellt, hef ég ákallað föðurinn þeirra vegna.

5 En sjá, öðrum aranglátum hef ég haldið í bfjötrum myrkursins fram á hinn mikla cdómsdag, sem koma mun við endalok jarðar —

6 Og þannig mun ég láta halda hinum ranglátu, sem ekki vilja heyra rödd mína, heldur herða hjörtu sín. Og vei, vei, vei er dómur þeirra.

7 En sjá, sannlega, sannlega segi ég yður, að aaugu mín hvíla á yður. Ég er bmitt á meðal yðar, en þér fáið eigi séð mig —

8 En sá dagur kemur brátt, er þér munuð asjá mig og vita að ég er, því að hulu myrkursins mun brátt svipt frá, og sá sem ekki er bhreinn fær eigi cstaðist þann dag.

9 Girðið þess vegna lendar yðar og verið viðbúnir. Sjá, aríkið er yðar og óvinurinn mun ekki sigra.

10 Sannlega segi ég yður, þér eruð ahreinir, þó ekki allir, en enga aðra er ég vel bánægður með —

11 Því að allt ahold er spillt frammi fyrir mér, og bmyrkraöflin ríkja á jörðunni á meðal mannanna barna í návist allra herskara himins —

12 Sem veldur því, að þögn ríkir og öll eilífðin aþjáist, og benglarnir bíða hins mikla boðs um að cuppskera jörðina, að safna saman dillgresinu, svo að hægt sé að ebrenna það, og sjá, óvinirnir hafa sameinast.

13 Og nú sýni ég yður leyndardóm, það sem geymt er í leynum og mun, er tímar líða, valda atortímingu yðar, og þér vissuð það ekki —

14 En nú segi ég yður það og þér eruð blessaðir. Ekki vegna misgjörða yðar, né vantrúar, því að sannlega eru nokkrir yðar sekir fyrir mér, en ég mun vera miskunnsamur gagnvart breyskleika yðar.

15 Verið því astyrkir héðan af, bóttist ei, því að ríkið er yðar.

16 Og yður til sáluhjálpar gef ég yður boðorð, því að ég hef heyrt bænir yðar og hinir afátæku hafa kvartað fyrir mér. Og hina bríku hef ég skapað, og allt hold er mitt, og ég fer ekki í cmanngreinarálit.

17 Og ég hef gjört jörðina auðuga, og sjá hún er afótskör mín. Þess vegna mun ég aftur standa á henni.

18 Og af lítillæti geymi ég yður enn meira ríkidæmi, já, fyrirheitna landið, land sem flýtur í mjólk og hunangi, og á því mun engin bölvun hvíla þegar Drottinn kemur —

19 Og ég mun gefa yður það til arfleifðar, ef þér leitið þess af öllu hjarta.

20 Og þetta skal vera sáttmáli minn við yður, þér skuluð hljóta það sem erfðaland og aarfleifð barna yðar að eilífu, meðan jörðin stendur. Og þér skuluð eignast það aftur í eilífðinni, og það skal aldrei framar undir lok líða.

21 En sannlega segi ég yður, að sá tími kemur, er þér munuð engan konung hafa né stjórnanda, því að ég mun verða akonungur yðar og vaka yfir yður.

22 Heyrið þess vegna rödd mína og afylgið mér og þér munuð verða bfrjáls þjóð og þér skuluð engin lög hafa önnur en mín lög þegar ég kem, því að ég er clöggjafi yðar, og hvað fær stöðvað hönd mína?

23 En sannlega segi ég yður: aKennið hver öðrum í samræmi við það embætti, sem ég hef útnefnt yður —

24 Og látið sérhvern mann ameta bróður sinn sem sjálfan sig og iðka bdyggðir og cheilagleika frammi fyrir mér.

25 Og enn segi ég yður: Látið sérhvern mann meta bróður sinn sem sjálfan sig.

26 Því að hvaða maður meðal yðar, sem á tólf sonu og gjörir engan greinarmun á þeim og þeir þjóna honum af hlýðni, mundi segja við einn: Klæð þig í skikkju og sit hér. Og við annan: Klæð þig í tötra og sit þar — og líta á syni sína og segja: Ég er réttvís?

27 Sjá, þetta hef ég gefið yður sem dæmisögu, og þetta er einmitt eins og ég er. Ég segi yður: Verið aeitt, og ef þér eruð ekki eitt, eruð þér ekki mínir.

28 Og enn segi ég yður, að óvinurinn í leynum sækist eftir alífi yðar.

29 Þér spyrjið ahernað í fjarlægum löndum, og þér segið að senn verði miklar styrjaldir í fjarlægum löndum, en þér þekkið ekki hjörtu manna í yðar eigin landi.

30 Ég segi yður þetta vegna bæna yðar. aSafnið þess vegna bvísdómi í brjóst yðar, svo að ranglátir menn opinberi yður þetta ekki með ranglæti sínu, þannig að það hljómi hærra í eyrum yðar en sú rödd, sem skekja mun jörðina. En séuð þér viðbúnir þurfið þér ekki að óttast.

31 Og svo að þér megið komast undan valdi óvinarins og safnast til mín sem réttlátt fólk, aflekklaust og vammlaust —

32 Gaf ég yður þess vegna fyrirmæli um að fara til aOhio. Og þar mun ég gefa yður blögmál mitt og þar mun yður cveitast kraftur frá upphæðum —

33 Og þaðan skal hver sem ég óska afara út á meðal allra þjóða, og þeim mun sagt hvað gjöra skal. Því ég hef mikið verk sem bíður, því að Ísrael skal bhólpinn verða, og ég mun leiða þá hvert sem ég vil, og ekkert afl fær cstöðvað hönd mína.

34 Og nú gef ég kirkjunni í þessum landshluta þau fyrirmæli, að ákveðnir menn meðal þeirra verði tilnefndir og þeir skulu tilnefndir með arödd kirkjunnar —

35 Og þeir skulu líta til hinna fátæku og þurfandi og veita þeim alíkn, svo að þeir líði ekki. Og sendið þá til þess staðar, sem ég hef boðið þeim —

36 Og það skal vera starf þeirra að stjórna málum varðandi eignir þessarar kirkju.

37 Og þeir sem eiga jarðir, sem ekki er unnt að selja, skulu yfirgefa þær eða leigja eftir því sem best hentar.

38 Sjáið um að allt sé varðveitt. Og þegar mönnum aveitist kraftur frá upphæðum og þeir eru sendir út, skal öllu þessu safnað saman í faðm kirkjunnar.

39 Og ef þér leitið þess aríkidæmis, sem faðirinn vill gefa yður, skuluð þér verða ríkastir allra, því að þér skuluð eiga auðæfi eilífðarinnar, og það hlýtur að vera mitt að veita bauðæfi jarðarinnar. En verið á verði gegn cofurdrambi, svo að þér verðið ekki eins og dNefítar til forna.

40 Og enn segi ég yður: Ég gef yður boð um að sérhver maður, bæði öldungur, prestur og kennari, og einnig meðlimur, vinni að því af öllum mætti sínum, með erfiði ahanda sinna, að undirbúa og ljúka því sem ég hef boðið.

41 Og látið aprédikun yðar hljóma sem baðvörunarrödd. Sérhver maður aðvari náunga sinn, af mildi og hógværð.

42 Og farið afrá hinum ranglátu. Bjargið sjálfum yður. Verið þér hreinir, sem berið ker Drottins. Já, vissulega. Amen.