Ritningar
Kenning og sáttmálar 33


33. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til Ezra Thayre og Northrops Sweet í Fayette, New York, í október 1830. Við kynningu þessarar opinberunar staðfestir saga Josephs Smith, að „Drottinn… er ávallt reiðubúinn að leiðbeina þeim, sem af kostgæfni leita í trú.“

1–4, Verkamenn eru kallaðir til að boða fagnaðarerindið á elleftu stundu; 5–6, Kirkjan er stofnuð og hinum kjörnu skal safnað saman; 7–10, Iðrist, því að himnaríki er í nánd; 11–15, Kirkjan er byggð á bjargi fagnaðarerindisins; 16–18, Undirbúið komu brúðgumans.

1 Sjá, ég segi yður, þjónar mínir Ezra og Northrop: Opnið eyru yðar og hlýðið á rödd Drottins Guðs yðar, en aorð hans er lifandi og máttugt, beittara en tvíeggjað sverð, er smýgur í gegnum merg og bein, sál og anda, og greinir hugsanir og báform hjartans.

2 Því að sannlega, sannlega segi ég yður, að þér eruð kallaðir til að hefja upp raust yðar sem með alúðurhljómi, til að boða fagnaðarerindi mitt spilltri og rangsnúinni kynslóð.

3 Því að sjá, aakurinn er þegar hvítur til uppskeru, og þetta er hin bellefta stund og í csíðasta sinn sem ég mun kalla á verkamenn í víngarð minn.

4 Og avíngarður minn hefur bspillst gjörsamlega, og enginn gjörir cgott utan fáeinir, og þeim dskjátlast í mörgum tilvikum vegna eprestaslægðar, og allra hugir eru spilltir.

5 Og sannlega, sannlega segi ég yður, að þessa akirkju hef ég bstofnað og kallað út úr óbyggðunum.

6 Og einmitt þannig mun ég asafna mínum kjörnu saman úr öllum bfjórum skautum heimsins, öllum þeim, sem trúa munu á mig og hlýða rödd minni.

7 Já, sannlega, sannlega segi ég yður, að akurinn er þegar hvítur til uppskeru. Beitið þess vegna sigð yðar og uppskerið af öllum mætti yðar, huga og styrk.

8 aLjúkið upp munni yðar og hann skal fyllast, og þér skuluð jafnvel verða eins og bNefí til forna, sem ferðaðist frá Jerúsalem út í óbyggðirnar.

9 Já, ljúkið upp munni yðar og hlífið yður eigi, og bök yðar skulu hlaðin akornbindum, því að tak eftir, ég er með yður.

10 Já, ljúkið upp munni yðar og hann skal fyllast og segið: aIðrist, iðrist og greiðið Drottni veg og gjörið beinar brautir hans, því að himnaríki er í nánd —

11 Já, iðrist og látið askírast, hver og einn, til fyrirgefningar synda yðar. Já, látið skírast af vatni, og síðan kemur skírn af eldi og af heilögum anda.

12 Sjá, sannlega, sannlega segi ég yður, þetta er afagnaðarerindi mitt, og hafið hugfast að þeir skulu eiga trú á mig, ella geta þeir á engan hátt frelsast —

13 Og á þessu abjargi mun ég byggja kirkju mína. Já, á þessu bjargi eruð þér byggðir, og ef þér eruð stöðugir, munu bhlið heljar eigi á yður sigrast.

14 Og þér skuluð hafa hugfast að halda areglur og sáttmála kirkjunnar.

15 Og hverja þá, sem trúa, skuluð þér astaðfesta í kirkju minni með bhandayfirlagningu, og ég mun veita þeim cgjöf heilags anda.

16 Og Mormónsbók og hinar heilögu aritningar hef ég gefið yður til bleiðsagnar, og kraftur anda míns clífgar allt.

17 Verið þess vegna staðfastir og biðjið án afláts, látið loga á hreinum lömpum yðar og hafið olíu með yður, svo að þér séuð reiðubúnir við komu abrúðgumans —

18 Því að sjá, sannlega, sannlega segi ég yður, að ég akem skjótt. Já, vissulega. Amen.