Ritningar
Kenning og sáttmálar 16


16. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til Peters Whitmer yngri í Fayette, New York, í júní 1829 (sjá formála að kafla 14). Peter Whitmer yngri varð síðar eitt vitnanna átta að Mormónsbók.

1–2, Armur Drottins er yfir allri jörðunni; 3–6, Að prédika fagnaðarerindið og frelsa sálir er það sem mest er virði.

1 aHlýð á, þjónn minn Peter, og hlusta á orð Jesú Krists, Drottins þíns og lausnara.

2 Því að sjá, ég tala til þín af festu og krafti, því að armur minn er yfir allri jörðunni.

3 Og ég mun segja þér það, sem enginn maður veit, nema aðeins þú og ég —

4 Því oft hefur þú æskt þess af mér að fá að vita það, sem yrði þér mest virði.

5 Sjá, blessaður ert þú vegna þessa, og fyrir að tala orð mín, sem ég hef gefið þér, að boði mínu.

6 Og sjá nú, ég segi þér, að það, sem verða mun þér mest virði, er að boða fólki þessu iðrun, svo að þú megir leiða sálir til mín og hvílast með þeim í ríki föður míns. Amen.

      • Sjá K&S 15 varðandi hliðstæðar tilvísanir.