Ritningar
Kenning og sáttmálar 106


106. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Kirtland, Ohio, 25. nóvember 1834. Þessari opinberun er beint til Warrens A. Cowdery, eldri bróður Olivers Cowdery.

1–3, Warren A. Cowdery er kallaður sem yfirembættismaður staðarins; 4–5, Síðari koman mun ekki koma yfir börn ljóssins eins og þjófur; 6–8, Miklar blessanir fylgja dyggri þjónustu í kirkjunni.

1 Það er vilji minn að þjónn minn Warren A. Cowdery verði tilnefndur og vígður ráðandi háprestur kirkju minnar í aFreedom landi og nærliggjandi héruðum —

2 Að hann boði hið ævarandi fagnaðarerindi mitt og hefji upp raust sína og aðvari fólkið, ekki aðeins á sínu svæði, heldur í nærliggjandi sýslum —

3 Og helgi þessari háu og heilögu köllun, sem ég nú veiti honum, allan tíma sinn og aleiti af kostgæfni bhimnaríkis og réttlætis þess, og allt nauðsynlegt mun bætast honum að auki, því að verður er cverkamaðurinn launa sinna.

4 Og sannlega segi ég yður enn, að akoma Drottins bnálgast og kemur yfir heiminn sem cþjófur á nóttu —

5 Girðið þess vegna lendar yðar, svo að þér verðið börn aljóssins og þessi dagur bkomi ekki yfir yður eins og þjófur.

6 Og sannlega segi ég yður enn, gleði var á himni, þegar þjónn minn Warren laut veldissprota mínum og sagði skilið við slægð mannanna —

7 Blessaður er því þjónn minn Warren, því að ég mun vera honum miskunnsamur, og þrátt fyrir afordild hjarta hans mun ég hefja hann upp, svo sem hann er auðmjúkur gagnvart mér.

8 Og ég mun veita honum anáð og fullvissu, svo að hann fái staðist. Og sé hann áfram staðfast vitni og kirkjunni ljós, hef ég fyrirbúið honum kórónu í híbýlum bföður míns. Já, vissulega. Amen.