Ritningar
Jarom 1


Bók Jaroms

1. Kapítuli

Nefítar halda lögmál Móse, þeir vænta komu Krists og þeim vegnar vel í landinu — Margir spámenn leggja sig fram um að halda fólkinu á vegi sannleikans. Um 399–361 f.Kr.

1 Sjá, ég Jarom, letra nú fáein orð, að fyrirmælum föður míns, Enosar, til að sögu aættar okkar sé haldið til haga.

2 Og þar eð aþessar töflur eru bsmáar umfangs og cáletrunin í þeim tilgangi gjörð að verða bræðrum okkar dLamanítum að gagni, verð ég að vera stuttorður. Og ég mun ekki færa neitt í letur um spádóma mína eða opinberanir, því hverju gæti ég bætt við það, sem feður mínir hafa þegar ritað? Því að hafa þeir ekki opinberað sáluhjálparáætlunina? Jú, ég segi yður, að svo er, og það nægir mér.

3 Sjá. Mikið verk þarf að vinna meðal þessarar þjóðar, vegna þess að hún er hörð í hjarta, eyru hennar heyra ekki, hugur hennar er blindur og lund hennar aþrjósk. Engu að síður er Guð henni afar miskunnsamur og hefur enn ekki bmáð hana af yfirborði landsins.

4 Og margir eru meðal okkar, sem fá margar aopinberanir, því ekki eru þeir allir þrjóskufullir. Og allir þeir, sem ekki þrjóskast, heldur eiga trú, eiga bsamfélag við hinn heilaga anda, sem opinberar mannanna börnum í samræmi við trú þeirra.

5 Og sjá. Tvö hundruð ár voru nú liðin, og Nefíþjóðin var orðin öflug í landinu. Hún gætti þess að ahalda lögmál Móse og helgaði Drottni bhvíldardaginn. Og þeir cvanhelguðu ekkert, né dguðlöstuðu þeir. Og lög landsins voru afar ströng.

6 Og þeir voru dreifðir um mest allt landið og Lamanítar sömuleiðis. Og þeir voru miklu fjölmennari en Nefítar. Og þeir höfðu dálæti á amorðum og drukku blóð úr dýrum.

7 Og svo bar við, að þeir réðust oft gegn okkur Nefítum. En akonungar okkar og leiðtogar voru voldugir menn í trú sinni á Drottin, og þeir leiddu þjóðina á vegum Drottins. Þess vegna stóðumst við Lamanítana, rákum þá af blandi okkar og tókum að víggirða borgir okkar eða allt okkar erfðaland.

8 Og okkur fjölgaði mjög, og við dreifðumst um landið og auðguðumst mikið að gulli, silfri, dýrmætum munum, hagleiksgripum úr tré, byggingum og tækjum, sem og járni, kopar, látúni og stáli og unnum alls kyns jarðyrkjuverkfæri og astríðsvopn — já, oddhvassar örvar og örvamæla, skotspjót og kastspjót og allt, sem stríði tilheyrði.

9 Og þar eð við vorum þannig vel undir það búnir að mæta Lamanítum, vegnaði þeim ekki vel gegn okkur. En orð Drottins sannaðist, sem hann mælti til feðra okkar og sagði: Svo sem þér haldið boðorð mín, svo mun yður vegna vel í landinu.

10 Og svo bar við, að spámenn Drottins aðvöruðu Nefíþjóðina samkvæmt Guðs orði og sögðu, að héldi hún ekki boðorðin, heldur gjörðist lögmálsbrjótur, yrði hún aafmáð af yfirborði landsins.

11 Þess vegna lögðu spámennirnir, prestarnir og kennararnir sig ötullega fram við að áminna þjóðina með miklu langlundargeði um dugnað og staðfestu og kenndu alögmál Móse og skýrðu tilgang þess. Og þeir töldu hana á að bvænta Messíasar og trúa á komu hans ceins og hann væri þá þegar kominn. Og þannig kenndu þeir henni.

12 Og svo bar við, að með þessu tókst þeim að varna því, að þeim yrði atortímt í landinu, því að orð þeirra bsnertu hjörtu fólksins og vöktu það stöðugt til iðrunar.

13 Og svo bar við, að tvö hundruð þrjátíu og átta ár voru liðin og mestur hluti þess tíma leið við styrjaldir, illdeilur og ósamkomulag.

14 Og ég, Jarom, rita ekki meira, því að töflurnar eru smáar umfangs. En sjá, bræður mínir. Þér getið leitað til hinna ataflna Nefís, því að sjá, þar eru letraðar heimildir um styrjaldir okkar í samræmi við rit konunganna eða þau rit, sem þeir létu færa í letur.

15 Og þessar töflur sel ég í hendur syni mínum, Omní, svo að þær megi varðveitast samkvæmt afyrirmælum feðra minna.