Ritningar
Eter 5


5. Kapítuli

Þrjú vitni og verkið sjálft munu standa sem vitnisburður um sannleiksgildi Mormónsbókar.

1 En nú hef ég, Moróní, ritað þau orð eftir minni, sem mér var boðið að rita. Og ég hef greint þér frá því, sem ég hef ainnsiglað. Snertu það þess vegna ekki til að þýða það, því að það er þér bannað, nema þegar viska Guðs leyfir það.

2 Og sjá. Þú munt njóta þeirra forréttinda að fá að sýna töflurnar aþeim, sem aðstoða þig við þetta verk —

3 En aþremur skulu þær sýndar fyrir kraft Guðs, og þess vegna munu þeir bvita með vissu, að þetta er csannleikur.

4 Og af munni þriggja avitna munu orð mín staðfest. Og vitnisburður þriggja og þetta verk, sem sýna mun kraft Guðs, og einnig orða hans, sem faðirinn og sonurinn og hinn heilagi andi bera vitni um — allt þetta skal standa sem vitni gegn heiminum á efsta degi.

5 Og fari svo, að þeir iðrist og akomi til föðurins í nafni Jesú, skal við þeim tekið inn í Guðsríki.

6 Og hafi ég ekkert vald til þessa, skuluð þér dæma. Því að þér skuluð vita, að ég hef vald, þegar þér sjáið mig, og vér munum standa frammi fyrir Guði á efsta degi. Amen.