Ritningar
1 Nefí 10


10. Kapítuli

Lehí segir fyrir um að Babýloníumenn muni hneppa Gyðinga í ánauð — Hann segir fyrir um komu Messíasar meðal Gyðinga, frelsara, lausnara — Lehí segir einnig fyrir um komu þess sem eigi að skíra Guðslambið — Lehí segir frá dauða og upprisu Messíasar — Hann líkir tvístrun og samansöfnun Ísraels við olífutré — Nefí talar um son Guðs, gjöf heilags anda, og þörfina á réttlæti. Um 600–592 f.Kr.

1 En á aþessum töflum held ég, Nefí, nú áfram að gjöra grein fyrir gjörðum mínum, stjórn og helgri þjónustu, en til að halda frásögn minni áfram verð ég að fara nokkrum orðum um föður minn og bræður.

2 Því að sjá. Svo bar við, að þegar faðir minn hafði lokið við að hafa yfir orðin úr adraumi sínum og þar að auki hvatt bræður mína til þolgæðis, hóf hann að tala við þá um Gyðingana —

3 Að þegar þeim hefði verið tortímt, jafnvel hinni miklu borg aJerúsalem, og margir þeirra verið bhnepptir í ánauð til cBabýloníu, þá mundu þeir dsnúa aftur, þegar Drottni þóknaðist. Já, þeir yrðu jafnvel fluttir til baka úr ánauð, og eftir að þeir hefðu verið fluttir úr ánauð, þá fengju þeir erfðaland sitt til eignar að nýju.

4 Já, að jafnvel asex hundruð árum eftir að faðir minn yfirgaf Jerúsalem, mundi Drottinn Guð uppvekja bspámann meðal Gyðinga — jafnvel cMessías, eða með öðrum orðum frelsara heimsins.

5 Og hann talaði einnig um spámennina, hve margir hefðu borið avitni um þennan Messías, sem hann hefði talað um, eða þennan lausnara heimsins.

6 Og þess vegna væri allt mannkyn glatað og afallið og mundi ætíð verða það, nema það setti traust sitt á þennan lausnara.

7 Og hann talaði einnig um aspámann, sem koma mundi á undan Messíasi, til að greiða Drottni veg —

8 Já, hann færi jafnvel og hrópaði úti í eyðimörkinni: aGreiðið Drottni veg og gjörið beinar brautir hans, því að á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki. Og hann er mér máttugri, og ég er ei verður þess að leysa skóþveng hans. Og faðir minn lét mörg orð falla um þetta.

9 Og faðir minn sagði, að hann mundi skíra í aBetabara, handan Jórdanar, og hann sagði einnig, að hann mundi bskíra með vatni. Hann mundi jafnvel skíra Messías með vatni.

10 Og þegar hann hefði lokið við að skíra Messías með vatni, mundi hann vita og bera því vitni, að hann hefði skírt aGuðslambið, sem bera mundi burtu syndir heimsins.

11 Og svo bar við, að þegar faðir minn hafði mælt þessi orð, ræddi hann við bræður mína um fagnaðarboðskapinn, sem prédikaður yrði meðal Gyðinga, og einnig um ahnignun Gyðinga sakir bvantrúar. Og eftir að þeir hefðu cdeytt þann Messías, sem koma átti, og eftir að hann hefði verið deyddur, mundi hann drísa upp frá dauðum og með eheilögum anda mundi hann opinbera sig Þjóðunum.

12 Já, faðir minn talaði mikið um Þjóðirnar og einnig um Ísraelsætt, sem líkja mætti við aolífutré, sem greinarnar mundu brotnar af og þeim btvístrað um allt yfirborð jarðar.

13 Hann sagði, að þess vegna hlyti svo að fara, að við yrðum leiddir saman inn í afyrirheitna landið, til þess að orð Drottins, um að við dreifðumst um allt yfirborð jarðar, uppfylltust.

14 Og eftir að Ísraelsætt hefði verið tvístrað, yrði henni asafnað saman á ný. Eða, eftir að bÞjóðirnar hefðu tekið á móti fyllingu fagnaðarboðskaparins, mundu hinar náttúrlegu greinar colífutrésins, eða leifarnar af Ísraelsætt, að lokum vera græddar á, með öðrum orðum, þeir fengju vitneskju um hinn sanna Messías, Drottin sinn og lausnara.

15 Og þannig fórust föður mínum orð, þegar hann spáði og talaði við bræður mína, og hann sagði einnig margt annað, sem ég skrái ekki í þessa bók, því að ég hef skráð eins mikið af því í hina abókina og þjónar tilgangi mínum.

16 Og allt, sem ég hef talað um, gjörðist, meðan faðir minn dvaldi í tjaldi í Lemúelsdal.

17 Og svo bar við, að þegar ég, Nefí, hafði hlýtt á öll aorð föður míns um það, sem hann sá í bsýn, og einnig það, sem hann mælti í krafti heilags anda, en kraft hans hlaut hann fyrir trú á son Guðs — og sonur Guðs var sá cMessías, er koma átti — fylltist ég, Nefí, einnig löngun til að geta séð, heyrt og vitað um þessi mál fyrir kraft dheilags anda, sem er gjöf Guðs til allra þeirra, er leita hans af ekostgæfni, jafnt til fforna sem á þeim tíma, er hann mun opinbera sig mannanna börnum

18 Því að hann er hinn asami í gær, í dag og að eilífu, og frá upphafi veraldar hefur vegurinn verið ruddur fyrir alla menn, ef þeir iðrast og koma til hans.

19 Því að sá, sem leitar af kostgæfni, mun finna, og aleyndardómar Guðs munu afhjúpast þeim fyrir kraft bheilags anda, engu síður á líðandi stundu en á löngu liðnum og ókomnum tímum. Þess vegna er cfarvegur Drottins ein eilíf hringrás.

20 Þess vegna skaltu minnast þess, ó, þú maður, að þú verður adæmdur vegna allra þinna gjörða.

21 Hafir þú því sóst eftir að breyta ranglátlega á areynsludögum þínum, þá dæmist þú bóhreinn fyrir dómstóli Guðs. Og þar eð ekkert óhreint fær dvalið með Guði, verður þér vísað frá að eilífu.

22 Og heilagur andi veitir mér vald til að mæla þetta, en ekki luma á því.