2020
Musterið og þið
Apríl 2020


Musterið og þið

Ljósmynd
The Temple and You

Áður en kirkjan var endurreist, trúði fólk að ef einhver dæi í fjölskyldu þess, án skírnar, þá myndi það aldrei sjá hann eða hana aftur. Við getum, vegna endurreisnarinnar, verið skírð í musterinu í þeirra þágu. Við getum verið innsigluð saman um eilífð!

Þið, líkt og Joseph Smith, hafið líka verið útvalin af himneskum föður til að vinna mikilvægt starf í lífi ykkar. Hluta af því starfi er hægt að vinna í musterum. Þið getið tekið saman nöfn þeirra ættmenna ykkar sem ekki voru skírð meðan þau lifðu á jörðu. Þið getið síðan, eftir að hafa fengið musterismeðmæli, farið í musterið og skírst í þeirra þágu.

Biðjið til himnesks föður eftir leiðsögn þegar þið vinnið þetta verk. Ættmenni ykkar geta líka hjálpað ykkur. Hve mikilvæg og helg blessun þetta verður ykkur og þeim!

Sum ykkar getið ekki gert musterisverk nú, en einhvern daginn getið þið það. Hafið ávallt hugfast að þið eruð barn Guðs. Hann elskar ykkur fullkomlega.

Hlustið á innblástur heilags anda og búið ykkur undir að fara í musterið einhvern daginn. Þetta mun hjálpa ykkur að stuðla að dásamlegu lífi fyrir ykkur sjálf, látin ættmenni ykkar, fjölskyldu ykkar nú og þá sem þið eignist í framtíðinni. Drottinn mun hjálpa ykkur við að vinna verk hans. Þið eruð ein af hans hugrökku öndum.

Myndskreyting eftir Jared Matthews