2013
Kennsla fyrir okkar tíma
nóvember 2013


Kennsla fyrir okkar tíma

Á fjórða sunnudegi hvers mánaðar skulu Melkísedeksprestdæmi og Líknarfélag kenna námsefnið „Kennsla fyrir okkar tíma.“ Nota má eina ræðu eða fleiri frá nýjustu aðalráðstefnu til að undirbúa lexíu (sjá töflu hér á eftir). Stikuforsetar og umdæmisforsetar geta valið hvaða ræður skal kenna og þeim er einnig heimilt að fela biskupum og greinarforsetum þá ábyrgð. Leiðtogar ættu að leggja áherslu á gildi þess að bræðurnir í Melkísedeksprestdæminu og systurnar í Líknarfélaginu læri sömu ræður á sömu sunnudögum.

Þau ykkar sem sitja kennslustund á fjórða sunnudegi eru hvött til að kynna ykkur síðasta tímarit aðalráðstefnu.

Ábendingar um lexíur úr ræðum

Biðjið þess að heilagur andi verði með ykkur þegar þið nemið og kennið ræður. Þið getið freistast til þess að nota annað efni, en ráðstefnuræður er það námsefni sem nota skal. Verkefni ykkar er að hjálpa öðrum að læra fagnaðarerindið og lifa eftir því, líkt og kennt er á síðustu aðalráðstefnu kirkjunnar.

Lesið ræðurnar og hugið að reglum og kenningum sem nemendur ykkar hafa þörf fyrir. Hugið einnig að frásögnum, tilvísunum í ritningarnar og staðhæfingum í ræðunum, sem auðvelda ykkur að kenna sannleikann.

Gerið drög að því hvernig þið kennið reglurnar og kenningarnar. Íhugið að hafa með spurningar sem hjálpa nemendum:

  • Hugið að reglum og kenningum í ræðunum.

  • Hugsið um merkingu þeirra.

  • Miðlið hugmyndum, lífsreynslu og vitnisburði.

  • Heimfærið reglur og kenningar upp á líf þeirra.

Mánaðarlegar lexíur eru kenndar

Námsefni fjórða sunnudags

Október 2013–apríl 2014

Ræður fluttar á aðalráðstefnu í október 2013*

Apríl 2014–október 2014

Ræður fluttar á aðalráðstefnu í apríl 2014*

  • Velja má ræður frá fyrri ráðstefnu eða þeirri síðustu fyrir lexíur sem fluttar eru á fjórða sunnudegi í apríl og október. Ræður þessar eru aðgengilegar á mörgum tungumálum á conference.lds.org.