2010–2019
Skýrsla endurskoðunardeildar kirkjunnar, 2018
Apríl 2019


Skýrsla endurskoðunardeildar kirkjunnar, 2018

Til Æðsta forsætisráðs Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

Kæru bræður, eins og mælst er fyrir samkvæmt opinberun, skráðri í kafla 120 í Kenningu og sáttmálum, þá ákvarðar Umráðanefnd tíundar – sem skipuð er Æðsta forsætisráðinu, Tólfpostulasveitinni og Yfirbiskupsráðinu – útgjaldaheimildir kirkjusjóða. Einingar kirkjunnar nýta sjóði samkvæmt samþykktum fjárhagsáætlunum, í samræmi við reglur og starfsaðferðir.

Endurskoðunardeild kirkjunnar, sem samanstendur af viðkenndum almennum bókurum og er óháð öllum öðrum deildum kirkjunnar, hefur þá ábyrgð að framkvæma endurskoðun til að tryggja eðlilega fullvissu varðandi móttekin framlög, útgjöld og varðveislu eigna kirkjunnar.

Grundvallað á framkvæmdri endurskoðun, er Endurskoðunardeild kirkjunnar þeirrar skoðunar, að í öllu efnahagslegu tilliti, hafi meðferð allra framlaga, útgjalda, og eigna kirkjunnar fyrir árið 2018, verið stýrt og skráð í samræmi við samþykktar fjárhagsáætlanir, reglur og starfsaðferðir kirkjunnar. Kirkjan framfylgir þeim reglum sem hún kennir þegnum sínum að eyða ekki um efni fram, forðast skuld og leggja pening fyrir til mögru áranna.

Lagt fram með virðingu,

Endurskoðunardeild kirkjunnar

Kevin R. Jergensen

Framkvæmdastjóri