2010–2019
Skýrsla endurskoðunardeildar kirkjunnar, 2015
Apríl 2016


Skýrsla endurskoðunardeildar kirkjunnar, 2015

Til Æðsta forsætisráðs Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

Kæru bræður: Eins og fyrir er mælt um samkvæmt opinberun í kafla 120 í Kenningu og sáttmálum, sér sérstakt ráð, sem í eru Æðsta forsætisráðið, Tólfpostulasveitin og yfirbiskupsráðið, um notkun tíundargreiðslna varðandi greiðslur úr sjóðum kirkjunnar. Einingar kirkjunnar nýta fjármuni samkvæmt samþykktum fjárhagsáætlum, í samræmi við reglur og starfsaðferðir.

Endurskoðunardeild kirkjunnar, sem samanstendur af viðkenndum almennum bókurum og er óháð öllum öðrum deildum kirkjunnar, hefur þá ábyrgð að framkvæma endurskoðun til að tryggja að eðlilega fullvissu varðandi móttekin framlög, útgjöld og varðveislu eigna kirkjunnar.

Grundvallað á framkvæmdri endurskoðun, er Endurskoðunardeild kirkjunnar þeirrar skoðunar, að í öllu efnahagslegu tilliti, hafi meðferð allra framlaga, útgjalda, og eigna kirkjunnar fyrir árið 2015, verið stýrt og skráð í samræmi við samþykktar fjárhagsáætlanir, reglur og starfsaðferðir kirkjunnar. Kirkjan framfylgir þeim reglum sem hún kennir þegnum sínum að eyða ekki um efni fram, forðast skuld og leggja pening fyrir til mögru áranna.

Lagt fram með virðingu,

Endurskoðunardeild kirkjunnar

Kevin R. Jergensen

Framkvæmdastjóri