2023
Getsemane
Júní 2023


„Getsemane,“ Til styrktar ungmennum, júní 2023.

Staðir í ritningunum

Getsemane

Lærið meira um staðinn þar sem þjáningar frelsarans í okkar þágu hófust.

Ljósmynd
ólífutrjálundur

Hvar er þetta?

Í hlíð Olíufjallsins, austur af Jerúsalem (hægra megin á myndinni, merkt með risavöxnu tré).

Ljósmynd
kort af hinni fornu Jerúsalem

Kortamynd af Jerúsalem, eftir Jim Madsen

Hvað var þar?

Ólífutrjálundur og líklega pressa til að ná olíu úr ólífunum.

Ljósmynd
ólífupressa

Hvað gerðist þar?

Eftir síðustu kvöldmáltíðina fór Jesús Kristur með ellefu postulum sínum til Getsemane. Hann fór síðan afsíðis til að biðjast fyrir og tók Pétur, Jakob og Jóhannes með sér.

„[Að honum] setti … ógn og angist.“ Hann sagði: „Sál mín er hrygg allt til dauða“ (Markús 14:33–34).

Hann bað: „Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.

Þá birtist honum engill af himni sem styrkti hann.

Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir en sveiti hans varð eins og blóðdropar er féllu á jörðina“ (Lúkas 22:42–44).

Eftir þessar miklu þjáningar frelsarans, var hann svikinn af Júdasi og handtekinn af leiðtogum Gyðinga og hópi rómverskra hermanna.

Ljósmynd
Jesús Kristur í Getsemane

Getsemane, eftir Michael Malm