2023
Ljúkið upp hjarta ykkar fyrir heilögum anda
Apríl 2023


„Ljúkið upp hjarta ykkar fyrir heilögum anda,“ Til styrktar ungmennum, apr. 2023.

Til styrktar ungmennum Mánaðarlegur boðskapur, apríl 2023

Ljúkið upp hjarta ykkar fyrir heilögum anda

Á þessum páskum þakka ég himneskum föður fyrir þá gjöf sem hans ástkæri sonur er, sem kom sjálfviljugur til jarðar til að vera frelsari okkar. Ég er þakklátur fyrir að vita að hann friðþægði fyrir syndir okkar og reis upp frá dauðum. Dag hvern er það mér blessun að vita að ég muni dag einn rísa upp, sökum friðþægingar hans, til að lifa ævarandi í kærleiksríkri fjölskyldu.

Ég veit þetta á þann eina hátt sem sérhvert okkar fær vitað það. Heilagur andi hefur staðfest þennan sannleika í huga mínum og hjarta – ekki bara einu sinni, heldur oft.

Við höfum hið ómetanlega loforð um samfélag heilags anda. Við berum ábyrgð á að ljúka upp hjörtum okkar, til að taka á móti liðsinni andans í gegnum lífið.

Ljósmynd
blóm

Myndskreyting: Emily E. Jones

Fyrsta ákvörðunin er að vera auðmjúk frammi fyrir Guði.

Ljósmynd
bænarhendur

Önnur ákvörðunin er að biðja í trú á Drottin Jesú Krist.

Ljósmynd
áttaviti

Þriðja ákvörðunin er að hlýða algjörlega.

Ljósmynd
lögun hjarta

Fjórða ákvörðunin er að biðja þess að geta þekkt þarfir og hjarta annarra og hvernig liðsinna má þeim fyrir Drottin.

Ég bið þess af öllu hjarta að þið munið heyra rödd andans, sem af miklu örlæti er ykkur send. Ég bið þess líka að þið megið ætíð ljúka upp hjörtum ykkar til að taka á móti andanum, að þið megið njóta þeirrar gleði sem felst í stöðugu samfélagi hans.