Barnavinur
Ester drottning
Barnavinur, ágúst 2026


„Ester drottning,“ Barnavinur, ágú. 2026, 46–48.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, ágúst 2026

Ester drottning

Myndskreyting af Ester drottningu og konunginum

Ester var af Ísraelsætt, eða Gyðingur, sem bjó í Persíu. Konungurinn valdi hana til að verða drottning hans.

Myndskreyting af reiðum Haman lyfta hendi á Mordekaí, sem er standandi

Haman var þjónn konungs. Allir urðu að hneigja sig fyrir honum. En frændi Esterar, Mordekaí, hneigði sig aðeins fyrir Drottni.

Myndskreyting af hermönnum að lesa úr bókrollu

Haman var reiður og sagði konungi að Gyðingarnir fylgdu ekki lögunum. Konungur lét Haman gera ný lög þess efnis að allir Gyðingar yrðu drepnir.

Myndskreyting af Mordekaí á tali við Ester

Mordekaí bað Ester að ræða við konung um að breyta lögum Hamans, en hún var hrædd. Stundum drap konungurinn fólk sem kom óboðið til að tala við hann.

Myndskreyting af Ester í höllinni að fylgjast með fólki sem gengur hjá

Mordekaí sagði að Drottinn gæti hafa komið Ester fyrir í konungshöllinni til að bjarga Gyðingunum.

Myndskreyting af Ester og tveimur konum krjúpandi og í bæn

Ester vissi að hún yrði að tala við konunginn. Ester bað Gyðingana og þjóna sína að fasta með sér.

Myndskreyting af konunginum rétta út veldissprotann til Esterar

Ester fastaði í þrjá daga. Þegar hún fór til konungs, þá hélt hann veldissprotanum út. Það þýddi að hann var glaður að sjá hana. Ester sagði konungi að hún og þjóð hennar yrðu drepin vegna laga Hamans.

Myndskreyting af Ester að horfa til himins í átt að ljósgeislum

Konungurinn setti ný lög sem vernduðu Gyðinga. Trú Esterar á Drottin og hugdirfska hennar björguðu þjóð hennar.

Litasíða

Ég get sagt öðrum frá Jesú Kristi

PDF-litasíða af dreng við strætóstoppistöð að sýna tveimur stúlkum mynd af Jesú Kristi

Myndskreyting: Audrey Day. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.

Hverjum getið þið miðlað fagnaðarerindinu? Biðjist fyrir og spyrjið!