„Davíð og Golíat,“ Barnavinur, júní 2026, 46–88.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, júní 2026
Davíð og Golíat
Filistear voru að ráðast á Ísraelsmenn. Á hverjum morgni skoraði risavaxinn Filistei að nafni Golíat Ísraelsmenn á hólm, en enginn lagði í hann.
Davíð var smaladrengur sem trúði á Drottin. Dag einn fór Davíð með mat til bræðra sinna í hersveit Ísraelsmanna og heyrði áskorun Golíats.
Davíð sagði að hann væri ekki hræddur við að berjast við Golíat. Drottinn hafði verndað Davíð þegar hann barðist við ljón og björn er hann gætti sauða sinna. Hann vissi að Drottinn myndi vernda hann aftur.
Davíð tók fimm hála steina. Hann tók slöngvu sína og fór til að kljást við Golíat.
Þegar Golíat sá Davíð, gerði hann grín að honum. Hann sagði smaladreng ekki geta sigrað sig.
Davíð hljóp í áttina að Golíat og kastaði steini með slöngvunni sinni. Steinninn hæfði Golíat í ennið og hinn risavaxni maður féll til jarðar.
Þegar Filistear sáu að Golíat var dáinn, hlupu þeir á brott. Ísraelsmenn unnu orrustuna! Davíð treysti Drottni og Drottinn verndaði Ísrael.
Litasíða
Trú á Jesú Krist getur hjálpað mér að öðlast hugrekki.
Myndskreyting: Audrey Day. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.
Hvenær hefur Jesús hjálpað ykkur að vera hugrökk?
©2026 Intellectual Reserve, Inc. All rights reserved. Printed in the USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly The Friend Message, June 2026. Icelandic. 20063 190