Barnavinur
Spámaðurinn Jesaja
Desember 2026


„Spámaðurinn Jesaja,“ Barnavinur, des. 2026, 46–47.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2026

Spámaðurinn Jesaja

Myndskreyting af Jesaja að sjá Drottin í sýn

Dag einn í musterinu kallaði Drottinn Jesaja sem spámann. Jesaja elskaði fólkið og kenndi því um komu Jesú Krists.

Myndskreyting af Jesaja að spá fyrir um fæðingu Jesú Krists

Jesaja komst að því að Jesús Kristur kæmi dag einn til að frelsa fólk sitt frá synd. Ekki myndu þó allir kannast við hann sem frelsara sinn. Jesaja var sorgmæddur, því hann vissi að margir myndu ekki trúa á Jesú.

Myndskreyting af Jesaja að skrifa um síðari komu Jesú Krists

Jesaja spáði líka fyrir um síðari komu Jesú Krists. Einhvern tíma myndi hann koma aftur og verða konungur allrar jarðarinnar. Hann myndi uppfylla áætlun föður síns með því að koma á ævarandi gæsku og friði. Jesaja sagði að allir myndu vita að Jesús Kristur væri frelsari þeirra.

Litasíða

Jesús Kristur fæddist í Betlehem

PDF-litasíða af Jósef að leiða asna með Maríu á baki

Myndskreyting: Audrey Day. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.

Hvernig fagnið þið fæðingu frelsarans?