Barnavinur
Öruggir í eldi
Október 2026


„Öruggir í eldi,“ Barnavinur, okt. 2026, 46–48.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, október 2026

Öruggir í eldi

Myndskreyting af Nebúkadnesar konungi

Nebúkadnesar konungur byggði risavaxna, gyllta styttu og þvingaði þjóð sína til að tilbiðja hana. Ef fólk neitaði, þá myndi því verða hent inn í glóandi eldsofn.

Myndskreyting af Sadrak, Mesak og Abed-Negó og hermanni

Sadrak, Mesak og Abed-Negó elskuðu Guð og vildu ekki tilbiðja skurðgoð konungs.

Myndskreyting af vinunum á tali við konung

Vinirnir þrír sögðu konungi að þeir myndu aðeins tilbiðja Guð. Þeir trúðu því að Guð gæti verndað þá. Jafnvel þótt hann bjargaði þeim ekki, myndu þeir verja trú sína.

Myndskreyting af Sadrak, Mesak og Abed-Negó í ofninum

Konungurinn varð reiður. Hann lét varpa vinunum í glóandi eldsofninn. En þegar konungurinn horfði í ofninn varð hann hissa á því að sjá himneska veru í eldinum, ásamt mönnunum þremur.

Myndskreyting af konunginum horfandi á Sadrak, Mesak og Abed-Negó ganga út úr ofninum

Konungurinn kallaði til Sadraks, Mesaks og Abed-Negó og þeir gengu út úr ofninum. Eldurinn hafði hvorki skaðað þá sjálfa, né brennt föt þeirra.

Myndskreyting af Sadrak, Mesak og Abed-Negó gangandi og talandi við konunginn

Sadrak, Mesak og Abed-Negó hlýddu boðorðum Guðs, jafnvel þegar líf þeirra var í hættu. Fordæmi þeirra hjálpaði konunginum að trúa á Guð.

Litasíða

Spámenn eru kallaðir til að mæla orð Drottins.

PDF-litasíða af spámönnum Biblíunnar

Myndskreyting: Audrey Day. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.

Hvernig fylgið þið spámanninum?