„Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum,“ Barnavinur, apr. 2023, 46–47.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, apríl 2023
Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum
Myndskreyting: Apryl Stott
María og Marta áttu bróður sem hét Lasarus. Þau voru vinir Jesú Krists.
Lasarus varð mjög veikur. Stuttu síðar dó hann. María og Marta voru sorgbitnar. Þegar Jesús kom, grét hann með þeim.
Jesús fór með þeim að gröf Lasarusar. Hann sagði: „Lasarus, kom út!“
Lasarus reis á fætur og gekk út úr gröfinni. Hann hafði lifnað við! Við munum öll lifa aftur líka, vegna Jesú!
Litasíða
Jesús Kristur lifir
Myndskreyting: Apryl Stott
Hvernig minnist þið Jesú á páskum?
© 2023 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, April 2023. Language. 19006 190