2022
Rut og Naomí
Júní 2022


„Rut og Naomí,“ mánaðarlegur boðskapur Barnavinur, júní 2022

„Rut og Naomí“

Mánaðarlegur boðskapur: Barnavinur, júní 2022

Rut og Naomí

Ljósmynd
Rut gengur í hjónaband, með fjölskyldu Naomí

Myndskreyting eftir Apryl Stott

Naomí og fjölskylda hennar komu til nýs lands vegna hungursneyðar. Þau hittu unga konu að nafni Rut. Rut giftist syni Naomí.

Ljósmynd
Rut með deyjandi eiginmann

Síðan lést eiginmaður Rutar. Rut var afar sorgmædd.

Ljósmynd
Naomí

Naomí var líka afar sorgmædd. Hún átti enga fjölskyldu eftir til að annast hana. Hún ákvað að fara til baka til landsins sem hún kom frá.

Ljósmynd
Naomí og Rut

Naomí sagði Rut að fara aftur til fjölskyldu sinnar. Rut elskaði þó Naomí. Hún lofaði að fara með Naomí og annast hana.

Ljósmynd
Rut tínir á akrinum

Rut og Naomí voru fátækar. Rut vann því hörðum höndum að því að finna mat fyrir þær.

Ljósmynd
Bóas og Rut á akrinum

Dag einn sá maður að nafni Bóas Rut safna saman afgangskorni af ökrum hans.

Ljósmynd
Bóas með þjóni

Bóas var gæskuríkur. Hann bauð verkamönnum sínum að skilja eftir mat fyrir Rut.

Ljósmynd
Rut, Bóas og Naomí með barn

Síðar giftust Rut og Bóas. Þau eignuðust dreng. Naomí hjálpaði til við að annast hann.

Ljósmynd
fjölskylda reiðir fram mat

Ég get hjálpað til við að annast aðra. Ég get sýnt nauðstöddum góðvild.

Litasíða

Ég get annast aðra

Ljósmynd
börn með afa

Smellið á myndina til að niðurhala.

Myndskreyting eftir Apryl Stott

Hverjum getið þið hjálpað?