Myrkur, andlegt Sjá einnig Ranglátur, ranglæti Ranglæti eða vanþekking um andlega hluti. Vei þeim sem gjöra myrkur að ljósi, Jes 5:20 (2 Ne 15:20). Myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðinni, Jes 60:2. Jesús lýsir þeim sem sitja í myrkri, Lúk 1:79. Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki við því, Jóh 1:5 (K&S 45:7). Leggjum af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins, Róm 13:12. Eigið engan þátt í verkum myrkursins, Ef 5:8–11. Vegna þess að þér spyrjið ekki, eruð þér ekki leiddir inn í ljósið, heldur hljótið að farast í myrkri, 2 Ne 32:4. Satan útbreiðir verk myrkursins, He 6:28–31. Vald myrkursins ríkir á jörðunni, K&S 38:8, 11–12. Allur heimurinn stynur undan myrkrinu og undan fjötrum syndarinnar, K&S 84:49–54. Sé auglit yðar einbeitt á dýrð mína skal ekkert myrkur í yður búa, K&S 88:67. Þannig urðu myrkraverkin ráðandi meðal allra mannanna sona, HDP Móse 5:55.