Ritningar
Kenning og sáttmálar 129


129. Kafli

Leiðbeiningar gefnar af spámanninum Joseph Smith í Nauvoo, Illinois, 9. febrúar 1843, sem gjöra kunnar þrjár aðalleiðir til að greina hið sanna eðli þjónustuengla og anda.

1–3, Á himni eru bæði upprisnir líkamar og andalíkamar; 4–9, Kynntar leiðir, hvernig þekkja má boðbera handan hulunnar.

1 Tvenns konar verur eru á ahimni, sem sé: bEnglar, sem eru cupprisnar verur og hafa líkama af holdi og beinum —

2 Jesús sagði til dæmis: Þreifið á mér og lítið á, því að andi hefur ekki ahold og bein, eins og þér sjáið mig hafa.

3 Í öðru lagi: aAndar bréttvísra manna, sem orðið hafa fullkomnir, þeir sem ekki eru upprisnir, en erfa sömu dýrð.

4 Þegar boðberi kemur og segist hafa boð frá Guði, bjóðið honum þá hönd yðar og biðjið hann að taka í hana.

5 Sé hann engill, mun hann gjöra svo og þér munuð þá finna hönd hans.

6 Sé hann andi réttvíss manns, sem gjörður er fullkominn, mun hann koma í dýrð sinni, því aðeins á þann hátt getur hann birst —

7 Biðjið hann að taka í hönd yðar, en hann mun ekki hreyfa sig, þar eð það er andstætt reglu himins að réttlátur maður blekki. En hann mun samt flytja boð sín.

8 Sé það adjöfullinn, í líki engils ljóssins, mun hann rétta yður hönd sína, þegar þér biðjið hann um það, og þér munuð ekkert finna. Þér munuð þannig afhjúpa hann.

9 Þetta eru þær þrjár aðalleiðir, sem sýna yður hvort þjónusta er frá Guði komin.